Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Notkun í síma

Samþykktavefurinn er hannaður fyrir bæði tölvur og síma. Þú notar sömu vefslóð og sömu innskráningu.

Listi í síma

Það sem er öðruvísi

AtriðiÍ síma
ValmyndFalin. Smelltu á hamborgaratáknið efst til hægri.
Efsta stikanSýnir tákn og heiti þess hluta sem þú ert í.
LeitarreiturEfst, í fullri breidd.
Spjöld/taflaTáknhnappar við hliðina á leitarreitnum. Spjöld eru sjálfgefin.
SpjöldÍ fullri breidd, hvert undir öðru.
ViðhengiSérstakur flipi í stað hægri dálks.
Neðsta stikanVal á umhverfi og fyrirtæki í tveimur röðum.

Valmyndin

Smelltu á hamborgaratáknið efst til hægri.

Valmynd í síma

Valmyndin inniheldur sömu hnappa og í tölvu. Hún lokast sjálfkrafa þegar þú velur eitthvað, og einnig með × efst til hægri.

Afgreiða reikning í síma

  1. Smelltu á spjald til að opna reikninginn.

    Reikningur í síma

  2. Notaðu flipana til að skoða Reikningsyfirlit, Athugasemdir, Síðustu reikningar og Viðhengi.

  3. Smelltu á Samþykkja eða Hafna neðst.

Efst er bakhnappurinn Beiðnir og örvar til að fara á næsta eða fyrri reikning án þess að fara til baka í listann.

Fjöldaafgreiðsla í síma

Fyrir ofan listann er stika með Velja allt og teljara sem sýnir hversu mörg skjöl eru valin. Merktu við þau skjöl sem á að afgreiða og notaðu aðgerðahnappana.

Skoða viðhengi

Opnaðu flipann Viðhengi í reikningnum. Fyrsta viðhengið hleðst sjálfkrafa.

Viðhengi í síma