Undirbúa aðgang að Völu
Kerfisstjóri undirbýr aðgang fyrirtækisins áður en notendur byrja að spyrja Völu. Staðfestu fyrst virkjun og heimildir; ekki breyta tengistillingum eða eyða gögnum til að leysa venjulega innskráningarvillu.
Tilgangur
Notendur geta skráð sig inn og fengið svör með þeim gagnaaðgangi sem þeir hafa í Business Central.
Forsendur
Rue de Net hefur virkjað Völu fyrir Microsoft 365-umhverfi fyrirtækisins og viðbótin Rue de Net Vala AI er uppsett í Business Central. Við uppsetningu reynir viðbótin að fylla tengistillingar og sækja aðgangsupplýsingar sjálfkrafa. Ef það tekst ekki skaltu hafa samband við Rue de Net.
Heimildir
Úthlutaðu Vala UI - Notandi til almennra notenda og Vala UI - Kerfisstjóri til þeirra sem annast uppsetningu. Stjórnendur hafa einnig aðgang að spjallinu. Heimildir Völu koma ekki í stað heimilda til að lesa viðskiptagögn.
Skref
- Opnaðu Vala í Business Central.
- Opnaðu notandavalmyndina efst og veldu Uppsetning. Aðgerðin er tiltæk stjórnanda Völu.
- Veldu Samþykkja fyrir M365 Tenant. Samþykkissíða Microsoft Entra opnast í vafra; stjórnandi Microsoft 365 veitir samþykki fyrir fyrirtækið. Hann getur einnig veitt samþykkið við fyrstu innskráningu í Völu.
- Farðu aftur í Völu og skráðu þig inn. Bíddu eftir að umboðsmenn séu sóttir og umhverfið undirbúið.
- Sendu spurningu og staðfestu að svar berist.
Tengistillingar og birting
Á Uppsetning Völu eru API Base URL, API Scope og Entra Client ID tengistillingar þjónustunnar. Client Secret sýnir hvort aðgangsupplýsingar séu Sett eða Ekki sett, en sýnir ekki gildið. Kerfi sýnir hvort lýsing umhverfis sé Tilbúin eða Ekki tilbúin.
- Sækja nýjustu stillingar skiptir tengistillingum og aðgangsupplýsingum út fyrir nýjustu skilgreindu gildin eftir staðfestingu. Ef aðgerðin mistekst haldast núverandi stillingar.
- Setja nýtt Client Secret tekur við nýju gildi í sérglugga, vistar það varið og reynir að sækja umboðsmenn og undirbúa umhverfið. Notaðu aðeins samkvæmt leiðbeiningum Rue de Net; gildið er ekki sýnt aftur.
- Hreinsa Kerfislýsingu fjarlægir geymda lýsingu og krefst staðfestingar. Lýsingin er búin til aftur við næsta undirbúning. Þetta eyðir ekki samtölum.
- Auðgað viðmót er sjálfgefið óvirkt. Ef þú virkjar það birtast niðurstöður tóla, auðlindanotkun hvers svars og valmynd fyrir niðurhalssnið. Annars birtist svartexti og niðurhal vistar Markdown-skrá.
- Fulltrúar sýnir tiltæka umboðsmenn og hver þeirra er sjálfgefinn.
- M365 Auth Tóken sýnir skyndivistaðar innskráningarupplýsingar núverandi notanda. Ekki deila þeim í samtali, aðstoðarbeiðni eða skjámynd.
Endursetja aðeins að yfirlögðu ráði
Viðvörun
Endursetja eyðir öllum samtölum og vistuðum fyrirspurnum allra notenda, hreinsar innskráningarupplýsingar, umboðsmenn og lýsingu umhverfis. Tengistillingarnar haldast. Gögnin verða ekki endurheimt með aðgerðinni.
Láttu notendur vita áður en þú velur Endursetja og staðfestir viðvörunina. Auðgað viðmót verður einnig óvirkt. Notendur þurfa síðan að skrá sig inn aftur og Vala sækir umboðsmenn og undirbýr umhverfið á ný.
Staðfesta
Notandi með almennar heimildir getur skráð sig inn og sent spurningu. Ef uppsetning er enn ófullgerð, enginn umboðsmaður birtist eða innskráning bregst, sjá aðstoð.