Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Fyrstu skref

Byrjaðu hér þegar þú ætlar að nota Völu í fyrsta sinn. Þegar aðgangur fyrirtækisins er tilbúinn skráirðu þig inn með Microsoft 365 og getur sent fyrstu spurninguna.

Yfirlit

Rue de Net þarf að hafa virkjað Völu fyrir fyrirtækið og viðbótin Rue de Net Vala AI þarf að vera uppsett. Kerfisstjóri úthlutar heimildum og sér um samþykki í Microsoft 365. Sjá uppsetningu Völu.

Hvernig þetta virkar

Við innskráningu sækir Vala tiltæka umboðsmenn og undirbýr lýsingu á uppsettum viðbótum í Business Central. Við síðari opnun uppfærir hún lýsinguna ef viðbæturnar hafa breyst.

Fyrsta innskráning

  1. Leitaðu að Vala í Business Central og opnaðu síðuna.
  2. Lestu upplýsingarnar um beta-prófun. Gögn úr Business Central eru send til Azure OpenAI til að svara spurningum. Í beta-prófun eru fyrirspurnir, gögn og svör einnig vistuð og yfirfarin til að bæta Völu. Með innskráningu samþykkirðu það. Ekki slá inn upplýsingar sem þú hefur ekki heimild til að deila.
  3. Veldu Skrá inn og byrja og skráðu þig inn með Microsoft 365-reikningnum þínum.
  4. Bíddu meðan umboðsmenn eru sóttir og umhverfið undirbúið.
  5. Sendu fyrstu spurninguna og berðu svarið saman við færslurnar í Business Central.

Innskráning í Völu með upplýsingum um beta-prófun

Til að skrá þig út skaltu opna notandavalmyndina efst og velja Skrá út.

Ávinningur

Þegar þú hefur staðfest að þú getir sent spurningu og skoðað svarið geturðu notað sama samtal fyrir eftirfylgnispurningar. Ef samþykki vantar eða innskráning tekst ekki, sjá aðstoð.