Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Flytja inn laun

Sæktu laun fyrir einn mánuð í færslubókina sem á að taka við þeim. Innflutningurinn stofnar línurnar, en þú þarft að yfirfara og bóka þær.

Sviðsmynd

Bókari hjá Dæmi ehf. sækir laun fyrir febrúar 2026 og ber færslurnar saman við launaskýrsluna áður en hann bókar.

Áður en þú byrjar

  • Tengdu Launa og athugaðu lánardrottna.
  • Hafðu launaskýrsluna fyrir mánuðinn tiltæka í Launa og fjárhagsreikningana til í Business Central.
  • Veldu rétta færslubókarkeyrslu. Tóm keyrsla heldur innflutningnum aðskildum frá öðrum færslum.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu Færslubækur og veldu keyrsluna sem á að taka við laununum.

  2. Veldu Launaskrá og síðan Flytja inn launafærslur. Þá opnast Innflutningsgluggi Launa.

    Launaskrá með aðgerðinni Flytja inn launafærslur

  3. Veldu Launaár 2026 og Launamánuður 2 og veldu Loka. Í upphafi sýna reitirnir ár og mánuð vinnudagsins.

    Innflutningsgluggi Launa með reitunum Launaár og Launamánuður

  4. Ef keyrslan inniheldur línur er spurt hvort eigi að bæta nýjum línum við. Staðfestu aðeins ef það er ætlunin og tímabilið hefur ekki þegar verið flutt inn. Innflutningurinn kemur ekki í veg fyrir tvítekningar.

    Spurt hvort bæta eigi aftan við línur í keyrslunni LAUNA

  5. Þegar Innflutningur heppnaðist birtist skaltu bera línurnar saman við launaskýrsluna: tímabil, fjárhagsreikninga, lánardrottna og fjárhæðir. Bókaðu síðan með hefðbundinni bókun í Business Central.

    Staðfesting á að innflutningur heppnaðist

Niðurstaða

Óbókaðar línur eru í völdu keyrslunni með 28. febrúar 2026 sem bókunardag, síðasta dag valins mánaðar. Fjárhæðir eru námundaðar að heilum krónum og línum með núllupphæð sleppt.

Innfluttar launafærslur fyrir febrúar 2026 í keyrslunni LAUNA

Lánardrottnafærslur eru sameinaðar eftir lánardrottni innan keyrslunnar, líka við eldri lánardrottnafærslur ef þær eru þar. Því þarf fjöldi lína ekki að vera sá sami og í launaskýrslunni.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

Ef tengingin bregst, skýrslan er tóm eða lánardrottin vantar skaltu finna skilaboðin í Aðstoð. Leiðréttu orsökina og skoðaðu keyrsluna áður en þú reynir aftur, svo þú sækir ekki sömu laun tvisvar.