Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Leiðrétta reikning

Hér verður fjallað um leiðréttingu á sölureikningi. Svipuð aðgerð er til fyrir innkaupareikning.

Leiðrétta:

  1. Opna bókaðan sölureikning og velja Aðgerðir - Leiðrétta - Leiðrétta. Bókaður sölureikningur
  2. Með því að velja Leiðrétta verður bókaði reikningurinn kreditfærður og nýr reikningur verður búinn til svo hægt sé að gera leiðréttinguna. Svara Já við spurningunni. Leiðrétta sölureikning
  3. Ef bókaður sölureikningur er ekki lengur opinn (jafnaður að fulla með greiðslu t.d.) þá er ekki hægt að nota aðgerðina Leiðrétta og þarf þá að stofna kreditreikning handvirkt. Sjá neðar.
  4. Bókaður sölukreditreikningur jafnast sjálfkrafa við bókaðan sölureikning þannig að eftirstöðvar eru 0.
  5. Breyta nú stofnaðan sölureikning og bóka hann. Þar með er búið að leiðrétta sölureikninginn.

Hætta við:

  1. Opna bókaðan sölureikning og velja Aðgerðir - Leiðrétta - Hætta við. Bókaður sölureikningur
  2. Með því að velja Hætta við verður sölukreditreikningur búinn til og bókaður til að bakfæra bókaðan sölureikning. Svara Já við spurningunni. Hætta við sölureikning
  3. Bókaður sölukreditreikningur jafnast sjálfkrafa við bókaðan sölureikning þannig að eftirstöðvar eru 0.

Stofna kreditreikning handvirkt:

  1. Stofna sölukreditreikning og velja Undirbúa - Afrita skjal. Sölukreditreikningur
  2. Velja Bókaður sölureikningur og viðeigandi númer. Haka í Taka haus með til að afrita upprunaleg reikninginn. Velja Í lagi. Afrita söluskjal
  3. Sölukreditreikningurinn er núna fylltur út með öllum upplýsingum frá upprunalega reikningnum. Efst í línunum er vísað í reikningsnúmerið auk þess sem það er fyllt út í jöfnunarnúmeri reikningsins. Nú má kreditfæra að fullu eða breyta kreditreikning til að kreditfæra að hluta. Sölukreditreikningur
  4. Bóka sölukreditreikninginn.