Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Innheimtubréf / áminningar

Kerfið getur búið til innheimtubréf eða áminningu fyrir viðskiptamenn með útistandandi skuld.

Hér að neðan verður útskýrt hvernig hægt er að stofna og senda innheimtubréf til viðskiptavina.

Setja upp skilmála innheimtubréfa

  1. Opna Skilmálar innheimtubréfa. Skilmálar innheimtubréfa
  2. Stofna skilmála til að geta úthlutað þeim á hvern viðskiptamann.
  3. Hægt er að stofna Stig innheimtubréfa til að reikna biðtíma, vanskilagjald o.s.frv. Stig innheimtubréfa

Úthluta skilamála innheimtubréfa til viðskiptavina

  1. Opna viðskiptamannaspjald.
  2. Færa viðeigandi skilmála innheimtubréfa undir flipanum Greiðslur. Viðskiptamannaspjald

Stofna innheimtubréf

  1. Opna Innheimtubréf. Innheimtubréf
  2. Velja Vinnsla - Stofna innheimtubréf og fylla inn í Bókunardags. og Dags. fylgiskjals fyrir stofnuðun innheimtubréfa. Stofna innheimtubréf
  3. Kerfið byrjar að búa til innheimtubréf. Innheimtubréf búin til
  4. Listi yfir stofnuð innheimtubréf birtist. Innheimtubréf
  5. Opna innheimtubréfið til að sjá á hvaða gjaldföllnum færslum bréfið byggist. Innheimtubréf

Senda innheimtubréf

  1. Í listanum yfir innheimtubréf, velja Vinnsla - Útgáfa. Velja Email eða Prentara og svo bókunardags. innheimtubréfs. Senda Innheimtubréf
  2. Ef Email var valið, sendist innnheimtubréfið sem PDF í tölvupósti á netfangið sem tilgreint er á viðskiptamannaspjaldi. Annars sækir kerfið skýrsluna. Innheimtubréf
  3. Hægt er að senda mörg innheimtubréf í einu með því að merkja þau í listanum og velja Vinnsla - Útgáfa.
  4. Send innheimtubréf hverfa úr listanum Innheimtubréf en þau er hægt að skoða í listanum Send innheimtubréf. Send Innheimtubréf