Dreifa kostnaði á innkaupaskjali
Notaðu prósentudreifingu til að skipta valinni kostnaðarlínu milli reikninga eða vídda. Sömu skref gilda á innkaupareikningi og innkaupakreditreikningi.
Sviðsmynd
Dæmi ehf. er með 10.000 kr. kostnað frá Prófun hf. og vill skipta honum 50%, 20% og 30%. Magn á línunni er 1 og bæði einingaverð og línuupphæð eru 10.000 kr.
Áður en þú byrjar
Stofnaðu dreifingu með prósentulínum sem eru samtals 100%. Ekki velja tóma dreifingu: þá getur upprunalega línan horfið án þess að nýjar línur verði til.
Skref fyrir skref
- Opnaðu óbókaðan innkaupareikning eða innkaupakreditreikning og veldu línu af gerðinni fjárhagsreikningur.
- Veldu Prósentudreifing í aðgerðum línunnar.
- Svaraðu já við Ertu viss um að þú viljir dreifa kostnaði?
- Í Prósentudreifing kostnaðar velurðu dreifinguna og staðfestir valið.
- Farðu yfir upphæðir, fjárhagslykla, lýsingar og víddir á nýju línunum áður en þú bókar.


Niðurstaða
Upprunalegu línunni er eytt. Þrjár nýjar línur bætast aftast á skjalið með 5.000 kr., 2.000 kr. og 3.000 kr. í þessu dæmi. Magn er afritað, en einingaverði og línuupphæð er skipt eftir prósentunum. Lýsing og útfyllt víddargildi koma úr dreifingunni. Aðgerðin bókar ekki skjalið.

Ef eitthvað fer úrskeiðis
Ef línan er af annarri gerð eða prósenturnar eru ekki samtals 100% færðu villu. Hættirðu við staðfestingu eða val á dreifingu breytist línan ekki. Sjá skilaboð og vandamál án skilaboða, þar á meðal tóma dreifingu og mun á samtölum.