Notkun
Þú notar þjóðskrárlistann til að stofna viðskiptamenn og lánardrottna eða samræma upplýsingar á spjöldum. Veldu verkið eftir því hvort fyrirtækið er þegar til í Business Central.
Yfirlit
- Stofna spjald: þegar fyrirtækið vantar sem viðskiptamann eða lánardrottin.
- Uppfæra upplýsingar: þegar nafn, heimilisfang eða staða hefur breyst.
Hvernig þetta virkar
Opnaðu Þjóðskrá Listi með leitinni í Business Central til að sjá allar aðgerðir. Aðgerðin Opna Þjóðskrá á viðskiptamanna- og lánardrottnalista opnar einnig þjóðskrá, en felur aðgerðir fyrir samþykkt og höfnun.
Viðskiptavinur er til og Lánardrottinn er til sýna hvort samsvarandi spjald finnst. Meðhöndlað merkir að línan hafi verið afgreidd, ekki endilega að spjaldi hafi verið breytt.
Ávinningur
Með því að skoða fyrirliggjandi spjöld áður en þú stofnar ný dregurðu úr tvískráningu. Réttir kennitölureitir í uppsetningu eru forsenda þess að tengingin finni þau.