Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Fyrstu skref

Kerfisstjóri setur tenginguna upp áður en þú stofnar eða uppfærir spjöld. Byrjaðu á einu spjaldi svo þú getir staðfest kennitölutengingu, nafn og heimilisfang áður en þú vinnur með fleiri færslur.

Yfirlit

Þú þarft uppsetta Ferli viðbót, virkan aðgang hjá Ferli og heimild í Business Central til að vinna með viðkomandi spjöld. Skráartenging þarf einnig Azure Function sem Rue de Net aðstoðar við að setja upp.

Hvernig þetta virkar

Skrá geymir þjóðskrárfærslur til uppflettingar nema geymsla sé útilokuð. Vefþjónusta sækir upplýsingar um eina kennitölu þegar upplýsingar eru fylltar inn á spjald.

Uppsetning í réttri röð

  1. Stilltu tenginguna: veldu kennitölureiti og uppruna gagna.
  2. Með skráartengingu skaltu lesa inn gögn áður en þú stofnar spjald úr listanum. Athugaðu að innlestur getur uppfært núverandi spjöld.
  3. Tímasettu uppfærslur aðeins eftir að handvirk keyrsla hefur tekist.

Fyrsta verkið

Stofnaðu spjald fyrir fyrirtæki úr þjóðskrárlistanum. Ef þú notar vefþjónustu fylgirðu í staðinn kaflanum um að fylla upplýsingar inn á nýtt spjald.

Ávinningur

Þú sérð strax hvort rétt kennitala tengist réttu spjaldi. Ef upplýsingar vantar skaltu skoða Aðstoð áður en þú heldur áfram.