Stillingar
Kerfisstjóri setur upp aðgang fyrirtækisins að Creditinfo áður en notendur sækja upplýsingar. Prófaðu hverja þjónustu sem fyrirtækið hyggst nota.
Tilgangur
Tengingin notar annars vegar aðgang að viðskiptamannavöktun og hins vegar aðgang að lánshæfismati og vanskilaskrá. Rangur aðgangur eða kennitölureitur getur valdið því að fyrirspurnir mistakist.
Forsendur
Fáðu þjónustuslóðir, notandanafn, lykilorð, MonitorID, Client ID, Client Secret og kennitölu spyrjanda frá Creditinfo. Notaðu upplýsingar sem eiga við aðgang fyrirtækisins. Ekki senda lykilorð eða leynilykla með skjámyndum í þjónustubeiðnum.
Heimildir
Notendur þurfa Creditinfo réttindi í Business Central. Heimildasafnið heitir CREDITINFO. Kerfisstjóri þarf einnig heimild til að breyta uppsetningu og, ef vöktun er tímasett, vinnsluraðarfærslum.
Skref
- Opnaðu Creditinfostillingar.
- Fylltu út WS leið, WS notandanafn, WS lykilorð og Kenni vöktunar fyrir vöktunarþjónustuna.
- Undir Tenging við Vog vanskilaskrá og Lánshæfismat vefþjónusturnar skaltu fylla út Grunnslóð vefþjónustu, Auðkenningarslóð vefþjónustu, Notandanafn, Lykilorð, Client ID, Client Secret og Kennitala spyrjanda. Notaðu slóðirnar sem Creditinfo úthlutar; ekki gera ráð fyrir að fyrirliggjandi gildi eigi við aðganginn þinn.
- Veldu Kennitölureitur viðskiptamanns. Sjálfgefið er reitur 1, númer viðskiptamanns. Ef númerið er ekki kennitala skaltu velja reitinn sem geymir hana. Athugaðu til dæmis að Dæmi ehf. sé með kennitölu í þeim reit áður en þú sendir fyrirspurn.
- Stilltu CIP hámarks líkur, CIP gulur þröskuldur og CIP rauður þröskuldur samkvæmt viðmiðum fyrirtækisins. Þau hafa áhrif á liti og geta líka sett viðskiptamann í vöktun: gula bilið getur kallað á staðfestingu, hærra bilið getur skráð hann sjálfkrafa. Því eru þetta ekki aðeins útlitsstillingar.
- Opnaðu Allir flokkar og veldu Uppfæra alla flokka. Opnaðu Allar ástæður úr vanskilaskrá og veldu Uppfæra ástæður, svo notendur geti valið ástæðu fyrirspurnar.
Staðfesta


Undir Prófa tengingu skaltu prófa Vaktin, Lánshæfismat og VOG Vanskilaskrá eftir notkun fyrirtækisins. Tengingin tókst staðfestir viðkomandi tengiprófun. Prófaðu síðan eina fyrirspurn og athugaðu að hún noti rétta kennitölu.
Sjálfvirk vöktun í vinnsluröð
Þegar handvirk uppfærsla vöktunar virkar getur kerfisstjóri tímasett hana í vinnsluröð. Veldu endurtekningu samkvæmt þörfum fyrirtækisins og skoðaðu niðurstöðu fyrstu keyrslunnar.
| Tegund hlutar | Auðkenni hlutar |
|---|---|
| Codeunit | 10041669 |
Keyrslan sækir sömu breytingar og Uppfæra vöktun. Athugaðu stöðu vinnsluraðarfærslunnar og síðustu uppfærslutíma í Creditinfovöktun; tímasetning ein staðfestir ekki að gögn hafi verið sótt.