Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Aðstoð

Finndu skilaboðin eða einkennin sem þú sérð þegar þú sækir upplýsingar. Athugaðu hvort vandinn kom upp við tengiprófun, einstaka fyrirspurn eða uppfærslu vöktunar. Ekki treysta á eldri niðurstöður sem nýjar eftir misheppnaða uppfærslu.

Tenging

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Tengingin tókstTengiprófun við viðkomandi þjónustu tókst.Prófaðu næst eina fyrirspurn með réttri kennitölu.
Tengingin við vefþjónustuna gekk ekki. Ástæðan: …Þjónustan skilaði ekki staðfestingu á tengiprófun.Athugaðu svar þjónustunnar og láttu kerfisstjóra yfirfara aðgang og slóðir.
Kall á vefþjónustu mistókst. Vefþjónustusvar: …Þjónustuprófun mistókst.Farðu yfir stillingar þeirrar þjónustu sem var prófuð.
Ekki tókst að ná samband við vefþjónustu / Kall í vefþjónustu skilaði villu.Vefþjónustukall mistókst.Athugaðu aðgang og tengingu; hafðu samband við kerfisstjóra ef villan endurtekur sig.
Vefþjónustan skilaði villumeldingu:\\ Kóði: …\ Lýsing: …\ Aðgerð: …\ Villulýsing: … / Vefþjónustan skilaði villuskilaboði:\\ Stöðukóti: …\ Lýsing: …\ Aðgerð: …\ Svar: …Þjónustan skilaði villusvari með upplýsingum um aðgerðina.Láttu kerfisstjóra yfirfara svarið. Fjarlægðu persónuupplýsingar og aðgangsupplýsingar áður en þú sendir það áfram.
Ekki náðist að heimila. \\ Svarið frá vefþjónustunni: …\\ Athugið hvort uppsetningin sé rétt á Creditinfostillingar síðunniAuðkenning tókst ekki.Yfirfarðu notandanafn, lykilorð, Client ID, Client Secret og auðkenningarslóð með kerfisstjóra.

Sjá Stillingar. Gefðu upp aðgerð og tíma villu í þjónustubeiðni, en ekki lykilorð eða leynilykla.

Fyrirspurnir og vöktun

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Viltu sækja CIP fyrir …? / Þú ert að uppfæra CIP fyrir …, ertu viss?Staðfesting fyrirspurnar, ekki villa.Athugaðu kennitöluna og staðfestu aðeins ef þú ætlar að sækja upplýsingar.
… er ekki gild kennitala!Kennitalan stenst ekki sniðprófun tengingarinnar.Athugaðu kennitölu og val á kennitölureit í uppsetningu.
Þú verður að skilgreina ástæðu texta fyrir ástæðu …!Valin ástæða krefst skýringar.Skráðu viðeigandi ástæðutexta og staðfestu aftur.
… er ógild fyrir CIP vöktun!Creditinfo samþykkti ekki kennitöluna í vöktun.Athugaðu kennitölu og heimildir hjá Creditinfo.
… óþekkt villa kom við að bæta … í vöktun!Skráning í vöktun mistókst.Athugaðu vöktunarstöðu og hafðu samband við kerfisstjóra áður en þú reynir ítrekað aftur.
… er ekki í CIP vöktun, ekki hægt að taka af vöktun!Engin staðbundin vöktunarskráning fannst fyrir kennitöluna.Athugaðu að réttur viðskiptamaður sé valinn.
… er farinn framyfir gulu viðmiðunarmörkin DEFAULT, bætta í áhættuvöktun? / … er farinn framyfir gulu viðmiðunarmörkin BANKRUPTCY, bætta í áhættuvöktun?Niðurstaða er á bili þar sem beðið er um staðfestingu vöktunar.Veldu hvort skrá eigi viðskiptamanninn í vöktun samkvæmt viðmiðum fyrirtækisins.
Acknowledge Batch ID is emptyCreditinfo skilaði engum staðfestanlegum breytingapakka; vinnslan stöðvaðist.Athugaðu MonitorID og aðgang að vöktun með kerfisstjóra. Ekki túlka villuna sem staðfestingu á að engar breytingar séu til.
### Not working!Vinnsla tiltekinnar afskráningar úr vöktun stöðvaðist.Hafðu samband við Rue de Net og gefðu upp hvaða uppfærsla var í gangi.

Vandamál án skilaboða

EinkenniSkýringHvað á að gera
Engar ástæður eru í boði.Ástæðulistinn þarf að vera sóttur.Opnaðu Allar ástæður og veldu Uppfæra ástæður.
Fyrirspurn skilar engu eftir ástæðuval.Hætt var við valið.Byrjaðu aftur, veldu ástæðu og staðfestu.
Viðskiptamaður kom sjálfkrafa í vöktun.CIP þröskuldar geta skráð hann sjálfkrafa.Yfirfarðu viðmiðin áður en fleiri fyrirspurnir eru sendar.
Tímasett vöktun skilar ekki nýjum uppfærslutíma.Keyrslan hefur ekki lokið með árangri.Skoðaðu stöðu og villu vinnsluraðarfærslunnar.
Aðgerð til að uppfæra CIP breytur finnst ekki.Eldri aðgerðir fyrir CIP breytur eru ekki í boði.Notaðu CIP niðurstöðurnar, ekki eldri leiðbeiningar um breytur.

Eldri uppsetningaraðgerðir

Skilaboð eða einkenniSkýringHvað á að gera
Það eru engar stöður í boðiUppfærsla allra staða sækir ekki gögn í þessari útgáfu.Ekki nota hana sem prófun á tengingunni. Prófaðu þjónusturnar í uppsetningu.