Hoppa yfir í efni

# Flutningsaðilar

alt text

Miðlarategund

Á þessa síðu hefur verið bætt við reitnum Miðlarategund þar sem hægt er að velja Póstinn, Flytjanda eða Landflutninga.

Tengja þarf miðlarategund við flutningsaðila til þess hægt sé að stofna farmbréf útfrá afhendingum. Ef einhver þeirra er valinn og gildi er ekki tómt þá er hægt að stofna farmbréf útfrá þeim afhendingum sem hafa þennan flutningsaðila skráðan sem miðlara.

Einnig er hægt að velja miðlarategundina "Self (No Barcode)". Þessi virkni útbýr límmiða fyrir sendingar fyrir innanhúss virkni. Þessir límmiðar eru einungis til þess að merkja sendingar en hafa enga virkni sem farmbréf.

Flutningsþjónusta

Til þess að tengja sniðmát farmrbéf við flutningsaðila skal velja flutningsaðila og ýta á Flutningsaðila -> flutningsþjónusta.

Þetta þarf ekki að vera fyrir flutningsaðila með miðlarategund "Self (No Barcode)".

alt text

Þá opnast þessi gluggi

alt text

Hver Flutningsaðili getur haft margar flutningsþjónustur. Á þessum þjónustum höfum við bætt við reitnum "Sniðmát farmrbéfs".

Sniðmát farmbréfs

Hér er hægt að velja það sniðmát sem á að nota á farmbréf þegar þessi þjónusta er valin.