Hoppa yfir í efni

Stillingar Farmbréfa

Almennt

alt text

Númerasería farmbréfa

Hér er valin númeraserían sem nota á við stofnun farmbréfa.

Kennitölureitur lánardrottins

Reiturinn á lánardrottnaspjaldi sem inniheldur kennitölu, sjálfgefið gildi er Nr.

Kennitölureitur viðskiptamanns

Reiturinn á viðskiptamannaspjaldi sem inniheldur kennitölu, sjálfgefið gildi er Nr.

Límmiði

Stafasett strikamerkis

Hér er valin tegund strikamerkis sem á að prenta á límmiða. Sjálfgefið gildi er Code-39.

Þegar afhending er bókuð

Búa til farmbréf

Ef hakað er í þennan reit þá stofnast farmbréf í kerfinu um leið og afhending er bókuð.

Opna fyrirspurnarglugga um fjölda pakkninga

Ef hakað er í þennan reit þá opnast fyrirspurnargluggi við bókun sem biður notandann um að skrá inn fjölda pakkninga.

Prenta límmiða

Ef hakað er í þennan reit þá prentast límmiði eftir stofnun farmbréfsins. Þessi stilling er ekki möguleg í SaaS umhverfum eins og er.

Senda farmbréf

Ef hakað er í þennan reit þá sendist farmbréf á flutningsaðila beint eftir bókun ef engin vandamál komu upp við stofnun þess.

Pósturinn

alt text

Slóð vefþjónustu

Vefslóð vefþjónustu Póstsins. Sjálfgefið gildi er rétt slóð, en henni má breyta í slóð prófunarvefþjónustu þeirra þegar það á við.

API Lykill

API Lykill til að auðkenna sig við vefþjónustu Póstsins. Hafa þarf samband við póstinn til að fá hann.

Ýtið hér til að prófa tengingu..

Aðgerð sem hægt er að ýta á til að prófa hvort tenging til Póstsins sé sett rétt upp.

Sjálfgefið kenni afhendingar.

Gefa skal upp sjálfgefið kenni afhendingar ef það á við og sniðmát eru ekki notuð. Þetta gildi þarf að senda með farmbréfum til Póstsins. Hægt er að breyta þessu gildi á spjaldi farmbréfs.

Flytjandi

alt text

Slóð vefþjónustu

Vefslóð vefþjónustu Flytjanda. Sjálfgefið gildi er rétt slóð, en henni má breyta í slóð prófunarvefþjónustu þeirra þegar það á við.

Notandanafn

Notandanafn í vefþjónustu Flytjanda

Lykilorð

Lykilorð í vefþjónustu Flytjanda

Ýtið hér til að prófa tengingu..

Aðgerð sem hægt er að ýta á til að prófa hvort tenging til Flytjanda sé sett rétt upp.

Númer viðskiptamanns

Viðskiptanúmer notanda í kerfi Flytjanda.

Landflutningar

alt text

Slóð vefþjónustu

Vefslóð vefþjónustu Landflutninga. Sjálfgefið gildi er rétt slóð, en henni má breyta í slóð prófunarvefþjónustu þeirra þegar það á við.

Notandanafn

Notandanafn í vefþjónustu Landflutninga

Lykilorð

Lykilorð í vefþjónustu Landflutninga

Ýtið hér til að prófa tengingu..

Aðgerð sem hægt er að ýta á til að prófa hvort tenging til Landflutninga sé sett rétt upp.

SSCC Fyrirtækjakóti

Fyrirtækjakóti SSCC númers. Notað til að búa til SSCC númer fyrir sendingar

SSCC Númerasería

Númerasería sem er partur af SSCC númeri. Fyrirtækjakóti + númer í númeraseríunni verða að vera samtals 17 stafir að lengd.

Demo

alt text

Prófunarstilling

Ef hakað er í þennan reit eru engin vefþjónustuköll send út. Í staðinn gerir kerfið ráð fyrir svörum vefþjónustunna. Gott að nota í prófanir og þegar sýna á kerfið.