Hoppa yfir í efni

Setja upp Farmbréfakerfi

Þegar Farmbréfakerfi er fyrst sett inn er best að vinna í Farmbréfahlutverkasetrinu sem fylgir kerfinu.

Það er gert með því að fara í tannhjólið uppi hægra megin og velja "Mínar stillingar". Svo undir reitnum Hlutverk, velja Farmbréfahlutverk.

Athuga skal hvort setja eigi inn kerfi sem reiða sig á Farmbréfakerfið, t.d. til að fylla sjálfkrafa í fjölda pakknina á vöruhúsaafhendingum.

alt text

  • Fyrsta skref í uppsetningu er að opna "Stillingar Farmbréfa" og fara eftir leiðbeiningum hér.. Í prófunum er góð hugmynd að notast við Demo stillingu til að byrja með, og seinna að notast við prófunarvefþjónustur flutningsaðila. Ekki er mælt með að gera meira við bókun en að stofna farmbréf til að byrja með. SaaS uppsetningar bjóða ekki upp á að prenta límmiða sjálfkrafa vegna tæknilegs eðlis.

  • Ef tenging við Póstinn hefur verið sett upp skal næst opna "Afhendingarþjónustur Póstsins" og velja aðgerðina "Sækja". Sjá nánar hér.

  • Næst skal opna "Sniðmát" og setja upp allavega eitt sniðmát fyrir hvern flutningsaðila sem á að nota. Ekki er nauðsynlegt að fylla í alla reiti á sniðmáti. Sjá nánar hér.

  • Þegar sniðmátin eru komin skal opna "Flutningsaðilar" og velja Miðlarategund á þeim aðilum sem Farmbréfakerfið á að nota. Næst skal opna flutningsþjónustur þeirra flutningsaðila og sjá til að allavega ein flutningsþjónusta sé til. Á flutningsþjónustunni er valið sniðmát sem tengist þeirri þjónustu. Sjá nánar hér.

  • Að lokum er hægt að opna "Stillingar viðskiptamanna" og setja Flutningsaðilakóta og flutningsþjónustukóta á þá viðskiptamenn sem það á við. Einnig er hægt að opna Sendist-til heimilisföng þessara viðskiptamanna og setja aðrar stillingar þar. Þetta er gert til að sölupantanir á þessara aðila fá sjálfkrafa á sig réttan flutningsaðila og flutningsþjónustu. Þegar afhending er bókuð er flutningsaðilinn og þjónustan af sölupöntuninni notuð til að finna út hvort stofna eigi farmbréf eða ekki.

Þegar þessari uppsetningu er lokið er hægt að bóka afhendingar til að stofna farmbréf. Einnig er hægt að opna gamlar afhendingar og velja aðgerðina "Stofna farmbréf" af þeim handvirkt.