Hoppa yfir í efni

Útborgun

Eftirfarandi þarf að fara í gegnum til að vinna að útborgun í launakerfinu:

  1. Stofna útborgun, velja tímabil.

Velja valmynd Útborgarnir og Ný útborgun. Þá opnast gluggi, sjá nánari lýsingu hér.

  1. Föst laun / fáir starfsmenn eða tímaskráning?

Fara yfir hvort er búið að setja upp föst laun starfsmanna.

  1. Opna forsendur launaseðils, setja inn einingar mv. Taxta á starfsmanni eða kjarasamningi.

Sjá nánari lýsingu hér.

  1. Stofna seðla.

Velja valmynd Heim og Stofna launaseðla ef á að stofna fyrir einn starfsmann annars Stofna launaseðla fyrir alla starfsmenn.

  1. Yfirfara launaseðla.

Velja valmynd Skoða - Launaseðlar. Sjá nánari lýsingu hér.

  1. Skýrslan Launasamanburður tímabila aðstoðar við að skoða frávik milli mánaða.

Skýrslan er undir valmyndinni Prenta/Senda - Útborgun.

  1. Hægt að bæta við launaliðum við launaseðil handvirkt. Helst á þó að gera þetta í forsendum launaseðils. Hægt að breyta einingum og töxtum. Sjá nánari lýsingu hér.

  2. Ef seðlum er breytt – muna að endurreikna, þá uppfærast frádráttarliðir ofl.

Aðgerðin er undir Aðgerðir - Annað - Endurreikna á launaseðli.

  1. Loka útborgun.

Sjá nánari lýsingu hér.

  1. Prófunarskýrsla keyrð, tékkar að allir seðlar séu uppfærðir, ath. að launaliðir séu rétt uppsettir ofl.

Aðgerðin er undir Prenta/Senda - Útborgun - Prenta prófunarskýrslu.

  1. Lesa inn launaafdrátt frá RSK.

Aðgerðin er undir Prenta/Senda - RSK og kröfuaðilar - Lesa RSK afdrátt.

  1. Senda til RSK.

Aðgerðin er undir Prenta/Senda - RSK og kröfuaðilar - Senda skilagrein til RSK. Sjá nánari lýsingu hér.

  1. Senda launaafdrátt til RSK (eftirágreiddir skattar).

Aðgerðin er undir Prenta/Senda - RSK og kröfuaðilar - Senda launaafdrátt RSK.

  1. Senda til lífeyrissjóða.

Aðgerðin er undir Prenta/Senda - RSK og kröfuaðilar - Senda til lífeyrissjóða. Sjá nánari lýsingu hér.

  1. Bóka útborgun.

Aðgerðin er undir valmynd Útborgun - Bóka útborgun. Það verður að loka útborgun áður en hægt er að bóka hana.