Hoppa yfir í efnið

Þjóðskrárlisti

Í þjóðskrárlista er hægt að lesa inn grunn- eða breytingaskrá frá Ferli, stofna viðskiptamann og/eða lánardrottinn og breyta núverandi viðskiptamanni eða lánardrottni m.v. þjóðskrárupplýsingar.

alt text

Upplýsingar

Kennitala:

Kennitala viðkomandi í þjóðskrá.

Nafn:

Nafn viðkomanda í þjóðskrá.

Nafn á viðskiptamannaspjaldi:

Nafn viðkomandi á viðskiptamannaspjaldi ef hann er þegar til sem viðskiptamaður í kerfinu.

Fjölskyldunúmer:

Fjölskyldunúmer viðkomandi í þjóðskrá.

Póstnúmer:

Póstnúmer viðkomandi í þjóðskrá.

Póstnúmer á viðskiptamannaspjaldi:

Póstnúmer viðkomandi á viðskiptamannaspjaldi ef hann er þegar til sem viðskiptamaður í kerfinu.

Lögheimili:

Lögheimili viðkomandi í þjóðskrá.

Heimilisfang á viðskiptamannaspjaldi:

Heimilisfang viðkomandi á viðskiptamannaspjaldi ef hann er þegar til sem viðskiptamaður í kerfinu.

Dagsetning innlesturs:

Dagsetning sem þjóðskrár skráin var lesin inn.

Meðhöndlað:

Ef hakað er í þennan reit hefur viðkomandi færsla verið meðhöndluð, þ.e.a.s. viðskiptamaður hefur verið stofnaður eða breytt.

Viðskiptavinur er til:

Ef hakað er í þennan reit þá er viðskiptamaður þegar til í kerfinu.

Lánardrottinn er til:

Ef hakað er í þennan reit þá er lánardrottinn þegar til í kerfinu.

Aðgerðir:

Lesa inn grunnskrá þjóðskrár:

Ef þessi aðgerð er valin er grunnskrá þjóðskrár lesin inn út frá slóð sem er tilgreind í Uppsetning þjóðskrár. Sjá nánari lýsingu hér.

Lesa inn breytingaskrá:

Ef þessi aðgerð er valin er breytingaskrá þjóðskrár lesin inn út frá slóð sem er tilgreind í Uppsetning þjóðskrár. Sjá nánari lýsingu hér.

Samþykkja allar línur:

Ef þessi aðgerð er valin munu allir viðskiptamenn breytast m.v. allar línur í listanum sem eru með hak í "Viðskiptavinur er til" og hver lína verður merkt "Meðhöndlað". Sjá nánari lýsingu hér. Ef viðskiptavinur er ekki til munu viðskiptamannaspjöld stofnast. Sjá nánari lýsingu hér.

Samþykkja valdar línur:

Ef þessi aðgerð er valin munu allir viðskiptamenn breytast m.v. allar valdar línur sem eru með hak í "Viðskiptavinur er til" og hver lína verður merkt "Meðhöndlað". Sjá nánari lýsingu hér. Ef viðskiptavinur er ekki til munu viðskiptamannaspjöld stofnast. Sjá nánari lýsingu hér.

Hafna völdum línum:

Ef þessi aðgerð er valin mun enginn viðskiptamaður breytast m.v. allar valdar línur sem eru með hak í "Viðskiptavinur er til" og hver lína verður merkt "Meðhöndlað".

Stofna valda viðskiptamenn:

Ef þessi aðgerð er valin mun viðskiptamaður stofnast fyrir allar valdar línur sem eru ekki með hak í "Viðskiptavinur er til", hver lína verður merkt "Meðhöndlað" og með hakað í reitinn "Viðskiptavinur er til". Sjá nánari lýsingu hér.

Opna viðskiptamannaspjald:

Þessi aðgerð opnar viðskiptamannaspjald fyrir viðkomandi aðila úr þjóðskránni. Sjá nánari lýsingu hér.

Notast við þjóðskráruppl. fyrir viðskiptav.:

Ef þessi aðgerð er valin mun viðskiptamaður uppfærast fyrir allar valdar línur sem eru með hakað í reitinn "Viðskiptavinur er til" og hver lína verður merkt "Meðhöndlað". Sjá nánari lýsingu hér.

Stofna valda lánardrottna:

Ef þessi aðgerð er valin mun lánardrottinn stofnast fyrir allar valdar línur sem eru ekki með hak í "Lánardrottinn er til", hver lína verður merkt "Meðhöndlað" og með hakað í reitinn "Lánardrottinn er til". Sjá nánari lýsingu hér.

Opna lánardrottnaspjald:

Þessi aðgerð opnar lánardrottnaspjald fyrir viðkomandi aðila úr þjóðskránni. Sjá nánari lýsingu hér.

Notast við þjóðskráruppl. fyrir lánardr.:

Ef þessi aðgerð er valin mun lánardrottinn uppfærast fyrir allar valdar línur sem eru með hakað í reitinn "Lánardrottinn er til" og hver lína verður merkt "Meðhöndlað". Sjá nánari lýsingu hér.