Hoppa yfir í efni

Stillingar tollakerfis

Í þennan glugga eru settar inn allar stillingar tollakerfis og EDI samskipta við toll.

alt text

Almennt

Kennitölureitur lánardrottins:

Segir til um hvaða reitur á lánardrottnaspjaldi inniheldur kennitölu.

Innflutningur virkur:

Ef hak er í þessum reit þá er innflutningstollakerfi virkur í gagnagrunni og útflutningurinn sést ekki.

Útflutningur virkur:

Ef hak er í þessum reit þá er útflutningstollakerfi virkur í gagnagrunni og innflutningurinn sést ekki.

Afhendingar codeunit:

Þarf alltaf að vera 10042362.

Nota EDI þýðanda:

Á alltaf að vera Já.

Skýrsla

Númerasería - Innflutningur:

Númerasería sem á að nota fyrir innflutningstollskýrslur.

Bókuð númerasería - Innflutningur:

Númerasería sem á að nota fyrir bókuðu innflutningstollskýrslu.

Uppfæra upprunaland frá skýrslu:

Hægt er að velja að uppfæra upprunaland á vöruspjaldi út frá tollskýrslulínu. Möguleikarnir eru: Nei, Alltaf, Ef tómt (sem þýðir að upprunaland á vöruspjaldi er eingöngu uppfært út frá tollskýrslulínu ef reiturinn er tómur).

Uppfæra brúttóþyngd frá skýrslu:

Hægt er að velja að uppfæra brúttóþyngd á vöruspjaldi út frá tollskýrslulínu. Möguleikarnir eru: Nei, Alltaf, Ef tómt (sem þýðir að brúttóþyngd á vöruspjaldi er eingöngu uppfærð út frá tollskýrslulínu ef reiturinn er tómur).

Uppfæra tollnúmer frá skýrslu:

Hægt er að velja að uppfæra kóta tollflokks á vöruspjaldi út frá tollskýrslulínu. Möguleikarnir eru: Nei, Alltaf, Ef tómt (sem þýðir að kóti tollflokks á vöruspjaldi er eingöngu uppfærður út frá tollskýrslulínu ef reiturinn er tómur).

Númerasería - Útflutningur:

Númerasería sem á að nota fyrir útflutningstollskýrslur.

Bókuð númerasería - Útflutningur:

Númerasería sem á að nota fyrir bókuðar útflutningstollskýrslur.

Sleppa nettóþyngd í þyngdardreifingu:

Ef Já þá mun dreifingin á brúttóþyngd ekki hafa áhrif á nettóþyngd sem er þegar skráð á tollskýrslulínu.

alt text

Sjálfgefin gildi kostnaðar

Vátrygging

Sjálfgefin prósenta tryggingar:

Hér á að skrá prósentu tryggingar sem á að nota á tollskýrslu, oftast 1%.

Sjálfgefinn gjaldmiðill tryggingar:

Hér á að skrá gjaldmiðil tryggingar sem á að nota á tollskýrslu, oftast ISK.

Stofna innkaup á tryggingum út frá skýrslu:

Hægt er að velja hvort á að stofna innkaup út frá tollskýrslu fyrir vátryggingu.

Númer vátryggingar:

Fjárhagslykill fyrir bókun á vátryggingu.

Lánardrottinn vátryggingar:

Lánardrottinn fyrir bókun á vátryggingu.

Flutningur

Stofna innkaup á flutningskosnaði útfrá skýrslu:

Hægt er að velja hvort á að stofna innkaup út frá tollskýrslu fyrir flutningskostnaðinn

Sjálfgefinn kostnaðarauki flutningskostnaðar:

Kostnaðarauki sem á að vera notaður sjálfkrafa fyrir bókun flutningskostnaðar.

Annar

Stofna innkaup á öðrum kostnaði útfrá skýrslu:

Hægt er að velja hvort stofna á innkaup út frá tollskýrslu fyrir annan kostnað.

Sjálfgefinn kostnaðarauki annars kostnaðar:

Kostnaðarauki sem á að vera notaður sjálfkrafa fyrir bókun annars kostnaðar.

alt text

Vefþjónusta

Slóð á dispatcher:

Slóð 1 fyrir Deloitte vefþjónustu.

Slóð á browser:

Slóð 2 fyrir Deloitte vefþjónustu.

Notendanafn:

Notendanafn fyrir Deloitte vefþjónustu.

Lykilorð:

Lykilorð fyrir Deloitte vefþjónustu.

EDI

X400 pósthólf mitt:

Hér á að skrá upplýsingar um X400 pósthólf innflytjanda.

EAN kennitala mín:

Hér á að skrá kennitölu innflytjanda tengt pósthólfinu.

X400 pósthólf tollsins:

Hér á að skrá upplýsingar um X400 pósthólf tollsins.

EAN kennitala tolls:

Hér á að skrá kennitölu tollsins (6501881019).

EDI miðlari:

Þessar upplýsingar eru veittar af Deloitte. Hér á að færa: SKOT-UT

EDI staðall:

Þessar upplýsingar eru veittar af Deloitte. Hér á að færa: SD.96A

EDI tilvísunarskrá:

Þessar upplýsingar eru veittar af Deloitte. Hér á að færa: CUSDEC96.REF

EDI vörpunarskrá:

Þessar upplýsingar eru veittar af Deloitte. Hér á að færa: CUSDEC96.MAP

EDI prófanamerki:

Hakað á í EDI prófunarmerki ef á að senda EDI skeyti í prófunarumhverfi tollsins.

alt text

Úrvinnsla tollsvara

Kostnaðarauki vöru:

Hér á að færa inn kostnaðarauka sem á að nota fyrir aðflutningsgjöld til að bóka þau ofan á innkaupsverð vöru.

Dreifing á úthlutuðum kostnaðarauka:

Hér á að velja hvernig á að dreifa úthlutuðum kostnaðarauka. Möguleikarnir eru: Eftir upphæð, Jafnt, eftir þyngd og eftir rúmmáli. Þetta gildi verður svo notað við dreifingu á úthlutuðum kostnaðarauka fyrir aðflutningsgjöld.

Lánardrottinn tolls:

Nr. lánardrottins fyrir tollstjóra, er notað til að búa til innkaupareikning á tollstjóra fyrir aðflutningsgjöld.

VSK fjárhagsreikningur:

Fjárhagsreikningur fyrir bókun VSK til tolls. Sjá nánari lýsingu hér.

Nafn færslubókarsniðmáts:

Ef á að bóka VSK í færslubók þarf að stilla heiti færslubókarsniðsmáts sem kerfið á að nota.

Nafn færslubókarbunka:

Ef á að bóka VSK í færslubók þarf að stilla heiti færslubókarbunka sem kerfið á að nota.

Færa VSK línur í færslubók:

Ef hakað er í þennan reit mun VSK til tolls færast í færslubók sem var valið hér að ofan þegar skuldfærsla berst frá tollinum. Ef ekki, þá verður VSK til tolls bætt við sem línu á innkaupareikning á tollstjóra með hinum aðflutningsgjöldum.

Reikningsnúmer lánardrottins:

Þessi reitur ákveður hvernig reikningsnúmer lánardrottins á að vera fyllt út á innkaupareikningi fyrir aðflutningsgjöld. Möguleikarnir eru: tómt, sendingarnúmer, tollskýrslunúmer.

Við móttöku á skuldfærslu:

Þessi reitur ákveður hvað kerfið á að gera við móttöku á skuldfærslu frá tolli. Möguleikarnir eru: Gera ekkert, Búa til innkaupaskjöl (búa til innkaupareikning á tollsjóra fyrir aðflutningsgjöld), Búa til og bóka innkaupaskjöl (búa til innkaupareikning á tollsjóra fyrir aðflutningsgjöld og bóka hann sjálfkrafa).

alt text

Gengi

Tollgengi gilt frá:

Tímabilið sem tollgengi gildir. Er alltaf ein vika eða 1V.

Slóð tollgengis:

Slóð til að sækja tollgengi hjá tollinum. Er alltaf: https://vefskil.tollur.is/tollalinan/gengi/Innflutningur.aspx

Tollkvótar

Fjárhagsreikningur tollkvóta:

Fjárhagsreikningur notaður fyrir bókun á tollkvóta.

Fjárhagsreikningur ónotaðs tollkvóta:

Fjárhagsreikningur notaður fyrir bókun á ónotaðum tollkvóta (afskriftir).

Nafn færslubókarsniðmát tollkvóta:

Færslubókarsniðmát sem kerfið á að nota til að bóka notkun tollkvóta.

Nafn færslubókabunka tollkvóta:

Færslubókarbunki sem kerfið á að nota til að bóka notkun tollkvóta.

Úthluta tollkvóta sjálfkrafa:

Ef hakað er í þessum reit þá úthlutast tollkvótinn sjálfkrafa á tollskýrslu.

Slóðir gagnapakka

Slóðir gagnapakka eru notuð til að sækja öll stofngögn tollakerfis í skýinu.

Gagnapakki stofngagna tolls:

Slóð til að sækja stofngögn tolls. Er alltaf: https://rdndevdemodata.blob.core.windows.net/tollakerfi/PackageSTOFNGOGNTOLLS.rapidstart

Slóð tollskráargagna:

Slóð til að sækja tollskrá: https://rdndevdemodata.blob.core.windows.net/tollakerfi/PackageSTOFNGOGNTOLLS.rapidstart

Slóð tollskráarlýsinga:

Slóð til að sækja lýsingu á tollskrám: https://rdndevdemodata.blob.core.windows.net/tollakerfi/TariffNumberDescriptions080421.txt

Aðgerðir:

Lesa inn gögn frá tolli:

Hægt er að lesa inn öll svarskeyti frá tolli í þessum glugga.

Prófa tengingu:

Með því að velja þessa aðgerð, staðfestir kerfið hvort tengingin næst með vefþjónustu Deloitte.