Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Stofna útborgun

Notaðu stofnun útborgunar til að hefja launavinnslu fyrir tímabil. Farðu yfir dagsetningarnar áður en þú heldur áfram, sérstaklega ef unnið er með annað tímabil en sjálfgefið.

Tilgangur

Útborgun heldur utan um launaseðla og aðrar forsendur fyrir eina launavinnslu.

Forsendur

  • Launakerfisgrunnur og launaforsendur ársins hafa verið yfirfarnar.
  • Starfsmanna- og launaliðagögn fyrir vinnsluna liggja fyrir.

Skref

  1. Opnaðu Útborganir og veldu Ný útborgun.
  2. Veldu launatímabil og fylltu út þær forsendur sem stofnunarglugginn biður um.
  3. Farðu yfir upphafs- og lokadagsetningar sem kerfið setur.
  4. Staðfestu stofnunina. Ef sjálfvirk stofnun launaseðla er virk spyr Launakerfi þá „Stofna launaseðla?“. Samþykktu til að stofna launaseðlana strax eða hafnaðu til að stofna þá síðar.

Niðurstaða

Útborgun birtist í listanum, ásamt launaseðlum ef þú samþykktir spurninguna.

Stofna launaseðla

  1. Opnaðu útborgunina og skráðu forsendur hennar í Forsendur launaseðils.
  2. Ef launaseðlarnir voru ekki stofnaðir með útborguninni skaltu velja útborgunina í listanum, velja Stofna launaseðla, velja starfsmenn og staðfesta stofnunina.
  3. Þegar launaseðlarnir eru til skaltu halda áfram með yfirferð launaseðla. Sjá einnig aðgerðir á launaseðli.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Ef tímabil eða dagsetningar eru ekki þær sem þú ætlar að vinna með skaltu yfirfara þær áður en þú skráir forsendur. Sjá Aðstoð.