Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Notkun

Bókarar nota Grunnpakka við VSK skil, verktakamiða og leiðréttingar á bókuðum færslum. Kerfisstjórar fylgjast með vinnsluröð og bregðast við bilunum.

Yfirlit

VSK skil

  1. Stofna VSK skilagrein.
  2. Yfirfara og senda skilagrein.
  3. Endurreikna og senda leiðréttingu ef færslur breytast.
  4. Bóka VSK uppgjör.
  5. Skoða kvittun og aðgerðasögu.
  6. Skoða leiðrétta VSK skýrslu.

Verktakamiðar

  1. Stofna og yfirfara verktakamiða.
  2. Senda verktakamiða rafrænt.
  3. Hlaða niður miðaskrá.

Vinnsluröð

Leiðrétta víddir á bókuðum færslum á við þegar deild eða önnur greining var röng við bókun.

Hvernig þetta virkar

Stofnun, yfirferð og sending VSK skila eru aðskilin frá bókun uppgjörs. Verktakamiðar byggjast á merktum lánardrottnafærslum fyrra árs; niðurhal textaskrár sendir ekki miðana.

Ávinningur

Þú getur yfirfarið gögn áður en þau fara til skattyfirvalda og varðveitt kvittun eftir skil. Vöktun og endurræsing vinnsluraðar styðja við rekstur bakgrunnsverkefna án þess að fela upphaflegu villuna.