Aðstoð
Sleppisvæðið birtir eftirfarandi skilaboð á ensku, líka þegar Business Central er á íslensku. „…“ stendur fyrir skráartegundina sem vafrinn greinir, til dæmis application/zip. Ekki nægir að breyta skráarendingu til að breyta skráartegund.
Skráartegundir
| Skilaboð | Skýring | Hvað á að gera |
|---|---|---|
| Cannot copy … to dropzone | Vafrinn greinir tegund sem svæðið tekur ekki við. | Vistaðu eða flyttu skrána út á studdu sniði, til dæmis PDF, og reyndu aftur. |
| File type is unkown, you may receive an error on drop | Vafrinn gefur ekki upp skráartegund. | Vistaðu skrána í möppu og reyndu aftur þaðan. |
| Forbidden file type: … | Ekki var hægt að taka við skránni eftir að henni var sleppt. | Notaðu studda skráartegund. Ef tegundin er studd en skilaboðin koma aftur skaltu senda skrána og skilaboðin til kerfisstjóra. |
Studdar skráartegundir eru taldar upp í Fyrstu skref. Sjá Draga skrár inn til að velja rétt sleppisvæði.