Hoppa yfir í efni

Senda alla launaseðla til banka

Forsendur

  • Bankakerfi Rue de Net þarf að vera sett upp.
  • Rue de Net BankDocs, undirkerfi Bankakerfis Rue de Net, þarf að vera sett upp.
  • Rue de Net Payroll Banking viðbótin þarf að vera sett upp.
  • Búið þarf að vera að stilla skýrslu Launaseðla á síðunni Launakerfisgrunnur í reitnum Launaseðill. Þar er reitinn bæði að finna undir Almennt og undir Banki -> Launaseðlar í banka. Til að skoða útlit launaseðla er hægt að fara í Launaseðil og smella á Prenta launaseðil.

Skoða útlit launaseðils

  • Sækja þarf um að geta sent PDF launaseðla með tilteknum BC bankanotanda í gegnum þjónustuaðila hjá viðeigandi banka. (Athugið að kerfið styður einnig XML launaseðla sem þyrfti þá að sækja um í staðinn. Þeir notast við stílsnið sem skráð er nú hjá bönkunum og RB undir nafninu DEFL-001. Mælt er með að nýta sér PDF launaseðlavirknina í staðinn sem er nýrri og byggist á BC skýrslum. Þetta er stillt undir Launakerfisgrunnur -> Banki -> Launaseðlar í banka.)

Virkni aðgerðar

Um er að ræða aðgerð sem sendir alla launaseðla tiltekinnar útborgunar til bankanna og gerir þá aðgengilega í heimabanka launþega.

Áður en launaseðlar eru sendir með þessum hætti þarf að vera búið að villuprófa og loka útborguninni.

Loka útborgun

Ef sending tókst fær notandi skilaboð þess efnis og útborgunin merkist sem send með hakinu Launaseðlar sendir í útborganalistanum.

Sending launaseðla tókst

Sending tókst ekki

Sending launaseðla tókst ekki

Ef þessi villa kemur upp þegar aðgerðin er keyrð um að aðgerðin hafi ekki verið afgreidd af neinum áskrifanda er líkleg skýring að uppsetningu á Launareikningi sé ábótavant. Launareikningur (Bankareikningur launareiknings) er tengdur við launakerfið á Launakerfisgrunnur síðunni:

Launareikningur

Villan gefur til kynna að það eigi eftir að tengja bankareikninginn við RdN bankaþjónustu sem styður innsendingar skjala (Arion - tegund arion, Landsbankinn - tegund li, Íslandsbanki - tegund isb.).

Sending launaseðla tókst

Launaseðlar leiðréttir eftir sendingu

Ef upp kemur að leiðrétta þarf launaseðla eftir að búið er að senda þá til bankanna þá er ekkert því til fyrirstöðu að senda þá aftur.

Þegar seðlar sömu útborgunar eru sendir aftur eru þeir yfirskrifaðir hjá Reiknistofu Bankanna í stað þess að nýir stofnist.

Ef reynt er að senda seðla útborgunar sem merkt hefur verið send aftur varar kerfið notanda við með staðfestingarglugga áður en keyrslan er framkvæmd.

Sending launaseðla tókst