Hoppa yfir í efni

Megin söluumbúðir

Þessar leiðbeiningar eiga við eftir 01.03.23.

0.5 Uppfæra tollakerfi

  1. Þann 01.03.23 þarf að lesa inn nýja tollskrá
  2. Í 'Stillingar tollkerfis' haka í 'Nota umbúðargjald vegna sölu- og flutningsumbúða' alt text

Þegar þetta er komið er hægt að byrja að setja virknina upp skv. leiðbeiningum hér að neðan

Uppsetning:

1. Lesa inn:

Byrja þarf á því að opna 'Viðmiðunartafla umbúða' og lesa þar inn viðmiðunartöflu: alt text

2. Setja inn raunmagn söluumbúða (valkvætt)

Ef setja á inn raunmagn umbúða er hægt að opna 'Raunmagn umbúðategundar' og þá opnast síða þar sem er hægt að stilla sínar eigin þyngdir fyrir umbúðategundina.

Einnig er hægt að gera þetta á tollskýrslu línunni þegar velja á megin söluumbúðir.

Ath. Það þarf ekki að gera þetta skref og hægt er að gera það hvenær sem er. alt text

3. Festa megin söluumbúðir á tollnúmer úr viðmiðunartöflu (valkvætt)

Í tollskránni er hægt að velja megin söluumbúðir fyrir tollnúmer. Ef þetta er gert eru þær umbúðir sjálfvaldar þegar tollskýrsla er mynduð, alltaf er hægt að breyta henni á tollskýrslu línunni

4. Festa megin söluumbúðir á vörunúmer úr viðmiðunartöflu (valkvætt)

Í 'Tollastillingar vörunúmera' er hægt að velja megin söluumbúðir fyrir vörunúmer. Þetta virkar eins og að festa umbúðir fyrir tollnúmer hér að ofan en þetta gildi yfirskrifar gildið fyrir tollnúmerið ef gildi er á báðum stöðum.

Notkun

Fyrir hvert tollanúmer er valið að nota annaðhvort viðmiðunartöfluna eða raunmagn söluumbúða.

alt text

Nota viðmiðunartöfluna

Á tollskýrslulínum er reitur 'Megin söluumbúðir viðmiðunartafla', hér eru megin söluumbúðir valdar og kemur viðmiðunar úrvinnslugjald fyrir umbúðunum.

alt text

Nota raunmagn

Á tollskýrslulínum er reitur 'Megin söluumbúðir raunmagn'. Hér koma upp þeir valmöguleikar sem áður hafa verið settir inn og einnig er hægt að bæta við nýjum ef þarf.

alt text

Ef bæta á við raunmagni eru megin umbúðirnar valdar og þyngd sett inn í viðeigandi reiti.

alt text