Hoppa yfir í efnið

Uppsetning bankaþjónustu

Listi uppsetninga bankaþjónustu

alt text

Í þessum glugga eru stofnaðar bankaþjónustur sem á að nota í bankakerfinu. Oftast er fyrirtækið með B2B tengingu með einn banka en kerfið getur meðhöndlað marga. Hægt er að nota "Uppsetningu með hjálp" til að stofna bankaþjónustur í listanum.

alt text

Kóði:

Gefur til kynna hvaða bankaþjónustu um ræðir. Er notað í reitnum "Uppsetning bankaþjónustu" á bankareikningi.

Nota Fjárhagstengingar cloud:

Það á að haka í þennan reit ef Bankakerfið notar fjárhagstengingar í skýinu.

alt text

Tegund:

Skilgreinir heiti bankaþjónustu (li fyrir Landsbankanum, isb fyrir Íslandsbanka, arion fyrir Arion banka). ATHUGA BETUR

Uppsetning bankaþjónustu

alt text

Kóði :

Gefur til kynna um hvaða bankaþjónustu ræðir. Er svo notað í reitnum "Uppsetning bankaþjónustu" á bankareikningi.

Tegund:

Skilgreinir heiti bankaþjónustu. Hér eru fjórir valmöguleikar eins og er: - li = Landsbanki Íslands - isb = Íslandsbanki - arion = Arion Banki - sandbox = Prófunarþjónusta Fjárhagstenginga.

Nota Fjárhagstengingar Cloud

Hér á að vera hakað í fyrir Fjárhagstengingar Cloud. Ef ekki er verið að nota Fjárhagstengingar Cloud birtast fleiri reitir fyrir uppsetningu. Hafið samband við Rue de Net fyrir frekari upplýsingar.

Nota viðstöðulausar greiðslur

Á bara við Landsbankann. Bunkinn stoppar í bankanum og þarf að fara inn í heimabankann til að borga.

Bunki sýnilegur öllum notendum

Á bara við Arion. Segir til um hvort bunkinn sé sýnilegur öllum notendum í heimabankanum.

Wse :

Hér ætti að velja "wse3" en það er ekki alltaf stutt og þá verður að velja "wse2".

Fleiri reitir eru til en ónotuð í Saas.