Bæta við afbrigði á vöru
- Þó svo varan hafi verið stofnuð og birt á vefnum er hægt að bæta við afbrigði á vöru, þá mun afbrygðið birtast á vefnum við næstu speglun.
- Opna Vefverslun vörulisti og velja vöru.
- Opna vefvöruspjald og Velja Tengt - Afbrigði - Afbrigði vefvöru.
- Velja nr. Ef varan er stillt fyrir afbrigði frá vöru þá opnast vörulistinn. Annars opnast afbrigðislistinn.
- Velja Eiginleikar og eiginleika á afbrigði (annað hvort þegar til eða stofna það) og svo loka.
- Velja Mynd og þá opnast listinn yfir viðhengi fyrir vöru.
- Flytja inn viðeigandi mynd og velja og svo í lagi.
- Nú má loka spjaldinu og við næstu speglun munu afbrigðin skila sér á vörunni í vefversluninni.