Hoppa yfir í efni

Stillingar Fylgibréfa

Almennt

alt text

Númerasería fylgibréfa

Hér er valin númeraserían sem nota á við stofnun fylgibréfa.

Kennitölureitur lánardrottins

Reiturinn á lánardrottnaspjaldi sem inniheldur kennitölu, sjálfgefið gildi er Nr.

Kennitölureitur viðskiptamanns

Reiturinn á viðskiptamannaspjaldi sem inniheldur kennitölu, sjálfgefið gildi er Nr.

Límmiði

Stafasett strikamerkis

Hér er valin tegund strikamerkis sem á að prenta á límmiða. Sjálfgefið gildi er Code-39.

Þegar afhending er bókuð

Búa til fylgibréf

Ef hakað er í þennan reit þá stofnast fylgibréf í kerfinu um leið og afhending er bókuð.

Opna fyrirspurnarglugga um fjölda pakkninga

Ef hakað er í þennan reit þá opnast fyrirspurnargluggi við bókun sem biður notandann um að skrá inn fjölda pakkninga.

Prenta límmiða

Ef hakað er í þennan reit þá prentast límmiði eftir stofnun fylgibréfsins. Þessi stilling er ekki möguleg í SaaS umhverfum eins og er.

Senda fylgibréf

Ef hakað er í þennan reit þá sendist fylgibréf á flutningsaðila beint eftir bókun ef engin vandamál komu upp við stofnun þess.

Pósturinn

alt text

Slóð vefþjónustu

Vefslóð vefþjónustu Póstsins. Sjálfgefið gildi er rétt slóð, en henni má breyta í slóð prófunarvefþjónustu þeirra þegar það á við.

API Lykill

API Lykill til að auðkenna sig við vefþjónustu Póstsins. Hafa þarf samband við póstinn til að fá hann.

Ýtið hér til að prófa tengingu..

Aðgerð sem hægt er að ýta á til að prófa hvort tenging til Póstsins sé sett rétt upp.

Sjálfgefið kenni afhendingar.

Gefa skal upp sjálfgefið kenni afhendingar ef það á við og sniðmát eru ekki notuð. Þetta gildi þarf að senda með fylgibréfum til Póstsins. Hægt er að breyta þessu gildi á spjaldi fylgibréfs.

Flytjandi

alt text

Slóð vefþjónustu

Vefslóð vefþjónustu Flytjanda. Sjálfgefið gildi er rétt slóð, en henni má breyta í slóð prófunarvefþjónustu þeirra þegar það á við.

Notandanafn

Notandanafn í vefþjónustu Flytjanda

Lykilorð

Lykilorð í vefþjónustu Flytjanda

Ýtið hér til að prófa tengingu..

Aðgerð sem hægt er að ýta á til að prófa hvort tenging til Flytjanda sé sett rétt upp.

Númer viðskiptamanns

Viðskiptanúmer notanda í kerfi Flytjanda.

Demo

alt text

Prófunarstilling

Ef hakað er í þennan reit eru engin vefþjónustuköll send út. Í staðinn gerir kerfið ráð fyrir svörum vefþjónustunna. Gott að nota í prófanir og þegar sýna á kerfið.