Hoppa yfir í efnið

Stillingar verðbreytingabókar

alt text

Almennt

Uppfæra einingarverð:

Ef hak er í þessum reit mun einingarverðið á birgðaspjaldinu uppfærist um leið og söluverð uppfærist.

Fela viðskiptamannaverð:

Ef hakað er í þennan reit sleppir kerfið því að taka inn verð af tegundinni Viðskiptamaður þegar bókin er keyrð upp.

Sía á sömu birgðageymslu:

Ef hakað er í þennan reit þá eru aðeins innkaup á sömu birgðageymslu borin saman til að uppfæra verð.

Sleppa því að búa til söluverðs línur:

Ef hakað er í þennan reit sleppir kerfið að búa til söluverðs línur þegar verð eru uppfærð.

Notendur fá tilkynningu:

Hægt er að skilgreina notendur sem munu fá tölvupóst við uppfærslu söluverða.

Sjálfgefinn verðlisti:

Hér er hægt að skilgreina hvaða söluverðslista á að nota sjálfkrafa til að uppfæra söluverðið sem hefur verið breytt í verðbreytingabókinni.

Sjálfgefinn VSK bókunarflokkur:

Hér verður að skilgreina hvaða VSK bókunarflokkur er sjálfgefinn vegna söluverðs t.d. Innanlands. Þessi bókunarflokkur er notaður til að reikna einingaverð með VSK í verðbreytingabókinni ef VSK bókunarflokkur er ekki skilgreindur á söluverðslínunni.

Stysta tímabil síðustu innkaupa:

Hér er hægt að skilgreina hvaða tími verður að líða á milli innkaupa sem borin eru sama til að koma í veg fyrir að borin séu saman innkaup á sama verði innan dags.

Sjálfgefin álagningarprósenta:

Hér er hægt að skilgreinina álagningarprósentu sem leggst ofan á nýjar vöru. Ef einingarverð vöru er 0 þegar Verðbreytingabók er keyrð upp, þá er álagningarprósentan hér notuð til útreiknings.

Byrjunardagsetning

Nota formúlu byrjunardagsetningar:

Ef hakað er í þennan reit notar kerfið formúluna til að reikna út gildisdagsetningu fyrir nýtt einingarverð. Ef ekki er hakað í þennan reit þá notar kerfið dagsetninguna sem verðbreytingin er staðfest.

Sjálfgefin dagsetning verðbreytingar:

Dagsetningarformúla fyrir dagsetningu verðbreytingar, t.d. 1D fyrir daginn eftir.

Dagsetning útreiknuð í dag:

Útreiknuð dagsetning er dæmi um dagsetningu miðaða við vinnudagsetningu og sjálfgefna dagsetningu verðbreytingar.

Sjálfgefin framlegð/álagning

Nota sjálfgefna framlegð (%)

Notað til að velja á milli þess að nota sjálfgefið framlegðarprósentu eða sjálfgefið álagningarprósentu þegar verð er reiknað fyrir nýjar vörur.

Nota sjálfgefna álagningu (%)

Notað til að velja á milli þess að nota sjálfgefið framlegðarprósentu eða sjálfgefið álagningarprósentu þegar verð er reiknað fyrir nýjar vörur.

Sjálfgefin framlegð (%)

Sjálfgefin framlegðarprósenta á nýjar vörur. Bara sýnilegt þegar hakað er í "Nota sjálfgefna framlegð (%)"

Sjálfgefin álagning (%)

Sjálfgefin álagningarprósenta á nýjar vörur. Bara sýnilegt þegar hakað er í "Nota sjálfgefna álagningu (%)"

Viðvaranir

Álagning % lágmark (viðvörun):

Undir þessari tölu mun kerfið gefa viðvörun á söluverðstillöguninni.

Álagning % hámark (viðvörun):

Yfir þessari tölu mun kerfið gefa viðvörun á söluverðstillöguninni.

Framlegð

Framlegð % lágmark (viðvörun):

Undir þessari tölu mun kerfið gefa viðvörun á söluverðstillöguninni.

Framlegð % hámark (viðvörun):

Yfir þessari tölu mun kerfið gefa viðvörun á söluverðstillöguninni.

Verðbreytingasaga

Verðbreytingasaga

Ef hakað er í þennan reit er verðbreytingasagan geymd

Stofna línur

Ef verðbreyting hefur nú þegar verið gerð á sömu birgðarfærslu, þarf að velja hvort og hvernig þær línur verða aftur til.

Sjálfkrafa: Línur stofnast alltaf

Notandinn velur: Fyrir hverja verðrbreytingabók velur notandinn hvort eigi að stofna línurnar aftur eða ekki

Aldrei: Línur stofnast aldrei

Aukareitir

alt text

Reitur X

Í boði eru 5 reitir sem hægt er að bæta við verðbreytingabók. Hægt er að velja hvaða kostnaðaraukar eru notaðir til að leggja saman í hvern reit.

Kostnaðaraukar

Kostnaðaraukar sem á að taka saman undir þessum reitum sem birtur er í verðbreytingabók.

Heiti

Nafn reitsins sem er birtur í verðbreytingabók.