Dreifa kostnaði á innkaupareikningi
Hér verður farið yfir hvernig hægt er að dreifa kostnaði á innkaupareikningi.
- Skrá prósentudreifingu kostnaðar í töflunni Prósentur lánardrottna.
- Stofna innkaupareikning á lánardrottni og skrá kostnaðarlínu.
- Velja Lína - Prósentudreifing.
- Svara Já við spurninguna frá kerfinu.
- Kerfið býr til eins margar línur og prósentudreifingin segir til um og færir rétta upphæð og vídd per línu.
- Ef samtals á prósentudreifingu á lánardrottni er ekki 100%, kemur villa þegar reynt er að dreifa kostnaði á línunni.
- Hægt er að dreifa kostnaði á mörgum línum í einu með því að velja allar línur áður en aðgerðin Split line cost er valin.
- Bóka innkaupareikninginn. Fjárhagsfærslur myndast skv. dreifingunni.