Útborgun
Eftirfarandi þarf að fara í gegnum til að vinna að útborgun í launakerfinu:
- Stofna útborgun, velja tímabil.
Velja valmynd Útborgarnir og Ný útborgun. Þá opnast gluggi, sjá nánari lýsingu hér.
- Föst laun / fáir starfsmenn eða tímaskráning?
Fara yfir hvort er búið að setja upp föst laun starfsmanna.
- Opna tímaskráningu, setja inn einingar mv. Taxta á starfsmanni eða kjarasamningi.
Sjá nánari lýsingu hér.
- Stofna seðla.
Velja valmynd Heim og Stofna launaseðla ef á að stofna fyrir einn starfsmann annars Stofna launaseðla fyrir alla starfsmenn.
- Yfirfara launaseðla.
Velja valmynd Skoða - Launaseðlar. Sjá nánari lýsingu hér.
- Skýrslan Launasamanburður tímabila aðstoðar við að skoða frávik milli mánaða.
Skýrslan er undir valmyndinni Prenta/Senda - Útborgun.
-
Hægt að bæta við launaliðum við launaseðil handvirkt. Hægt að breyta einingum og töxtum. Sjá nánari lýsingu hér.
-
Ef seðlum er breytt – muna að endurreikna, þá uppfærast frádráttarliðir ofl.
Aðgerðin er undir Aðgerðir - Annað - Endurreikna á launaseðli.
- Loka útborgun.
Sjá nánari lýsingu hér.
- Prófunarskýrsla keyrð, tékkar að allir seðlar séu uppfærðir, ath. að launaliðir séu rétt uppsettir ofl.
Aðgerðin er undir Prenta/Senda - Útborgun - Prenta prófunarskýrslu.
- Lesa inn launaafdrátt frá RSK.
Aðgerðin er undir Prenta/Senda - RSK og kröfuaðilar - Lesa RSK afdrátt.
- Senda til RSK.
Aðgerðin er undir Prenta/Senda - RSK og kröfuaðilar - Senda skilagrein til RSK. Sjá nánari lýsingu hér.
- Senda launaafdrátt til RSK (eftirágreiddir skattar).
Aðgerðin er undir Prenta/Senda - RSK og kröfuaðilar - Senda launaafdrátt RSK.
- Senda til lífeyrissjóða.
Aðgerðin er undir Prenta/Senda - RSK og kröfuaðilar - Senda til lífeyrissjóða. Sjá nánari lýsingu hér.
- Bóka útborgun.
Aðgerðin er undir valmynd Útborgun - Bóka útborgun. Það verður að loka útborgun áður en hægt er að bóka hana.