Breyta viðskiptamanni
Með þessari aðgerð mun viðskiptamannaspjald breytast fyrir allar valdar línur þar sem hakað er í reit "Viðskiptavinur er til" og hver lína verður merkt sem "Meðhöndlað".
Hægt er að gera þessa þessa uppfærslu sjálfvirka, sjá hér .
Samþykkja allar línur
Þessi aðgerð uppfærir alla viðskiptavini sem til eru á viðskiptamannaspjaldi og á þjóðskrálista.
Samþykkja valdar línur
Aðgerðin "Samþykkja valdar línur" uppfærir þá viðskiptamenn sem hefur verið hakað við:
-
Undir "Þjóðskrá Listi" eru valdir viðskiptavinir sem bæði eru til í þjóðskrálista og sem viðskiptamenn. Athugið að það er misræmi milli þjóðskráupplýsinga og upplýsinga á viðskiptamannaspjaldinu (póstnúmer og heimilisfang tómt á spjaldi).
-
Velja "Samþykkja valdar línur" undir "Uppfæra".
-
Viðskiptamannaspjaldi hefur verið breytt og listi uppfærist skv. því.
-
Opna viðskiptamannaspjald til að sjá breytingu.
Hafna völdum línum
Þessi aðgerð merkir valda viðskiptamenn sem "Meðhöndlaða" og uppfærast þær þá ekki þegar aðgerðirnar sem nefndar eru hér að ofan eru keyrðar.