Breyta lánardrottni
Með þessari aðgerð mun lánardrottnaspjald breytast fyrir allar valdar línur þar sem hakað er í reit "Lánardrottinn er til" og hver lína verður merkt sem "Meðhöndlað".
Samþykkja allar línur
Þessi aðgerð uppfærir alla lánadrottna sem til eru á lánadrottnaspjaldi og á þjóðskrálista.
Samþykkja valdar línur
Aðgerðin "Samþykkja valdar línur" uppfærir þá lánadrottna sem hefur verið hakað við:
-
Undir "Þjóðskrá Listi" eru valdir lánadrottnar sem bæði eru til í þjóðskrálista og sem lánadrottinn í kerfinu. Athugið að það er misræmi milli þjóðskráupplýsinga og upplýsinga á lánardrottnaspjaldinu (póstnúmer og heimilisfang tómt á spjaldi).
-
Velja "Samþykkja valdar línur" undir "Uppfæra" á þjóðskrálista.
-
Lánardrottnaspjaldi hefur nú verið breytt og listi uppfærist skv. því.
-
Opna lánardrottnaspjald til að sjá breytingu.
Hafna völdum línum
Þessi aðgerð merkir valda lánadrottna sem "Meðhöndlaða" og uppfærast þær þá ekki þegar aðgerðirnar sem nefndar eru hér að ofan eru keyrðar.