Hoppa yfir í efni

Rafræn VSK skil grunnur

Í þessum grunni eru settar upp allar upplýsingar til að stýra rafrænum VSK skilum.

alt text

Vefþjónusta VSK skila:

Fyllist sjálfkrafa þegar grunnurinn er stofnaður. Inniheldur slóð á vefþjónustu skattsins fyrir rafræn VSK skil.

Veflykill:

Hér á að færa veflykil fyrirtækisins fyrir rafræn VSK skil.

Reikna álag:

Ef hakað er í þennan reit mun kerfið reikna álag þegar skilagrein er send of seint til skattsins.

Árleg VSK skil:

Ef fyrirtækið er með árlegt VSK skil, þarf að haka í þennan reit.

Frá netfangi:

Netfang sem er sendandi á kvittun fyrir rafræn VSK skil.

Til netfangs:

Netfang sem er viðtakandi á kvittun fyrir rafræn VSK skil.