Viðskiptamannaspjald
Frá viðskiptamannaspjaldi er hægt að skoða öll rafræn skjöl síuð á númer viðskiptamanns.
Rafræn skjöl
Nota grunnmælieiningu:
Ef hak er í þessum reit þá verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) sett á allar línur reikninga á þennan viðskiptamann. Ef ekki er hakað í þennan reit þá er notast við vörpunum mælieininga þannig að ef mæleining er t.d. KG þá verður sent KGM í BII eða EDI reikningum.
Dreifisvæði:
Dreifisvæði sem á að nota til að senda rafræn skjöl á þennan viðskiptamann. Ef þessi reitur er skilinn eftir tómur þá sendist ekki rafrænn reikningur á þennan viðskiptamann.
Gerð eDoc skjals:
Gerð eDoc skjals sem viðskiptamaðurinn tekur á móti (staðall).
X400 Pósthólf:
Vegna EDI sendingar þarf að tilgreina X400 pósthólf viðskiptamanns.
GLN-númer:
Vegna EDI sendingar þarf að tilgreina GLN númer viðskiptamanns sem er EAN kennitalan.
Viðskiptamaður
Mynda rafræna reikninga:
Opnar aðgerð til að mynda rafræna reikninga aftur í tímann. Sjá nánari lýsingu hér.
Tengt
Rafræn skjöl:
Opnar vinnuskjal rafræna reikninga (lokið og ólokið) síað á númer viðskiptamanns. Flýtileið á lyklaborði er Ctrl + E
. Sjá nánari lýsingu hér.