Bókaðir sölureikningar
Hægt er að opna rafrænan reikning út frá bókuðum sölureikningum.
Tengt
Rafrænt skjal:
Opnar rafrænt skjal sem varð til úr bókuðum sölureikningi. Sjá nánari lýsingu hér.
Aðgerðir
Búa til rafræn skjöl fyrir valda:
Býr til rafræn skjöl fyrir valda bókaða sölureikninga. Ef viðskiptamaður er ekki skráður í rafræn skjöl þá býðst notanda að opna viðskiptamannaspjald til að skrá hann í rafræn skjöl og prófa svo aftur að búa til rafrænt skjal.