Vinnuskjal rafrænna reikninga
Vinnuskjalið rafrænna reikninga er hjarta kerfisins þar sem hægt er að sækja, senda, opna og vinna með rafræna reikninga.
Sía
Dags. afmörkun:
Hægt er að afmarka vinnuskjalið til að skoða rafræna reikninga eftir dagsetningarafmörkun.
Með villu:
Hægt er að afmarka vinnuskjalið til að skoða eingöngu rafræna reikninga sem eru á villu.
Staða:
Hægt er að afmarka vinnuskjalið til að skoða rafrænna reikninga eftir stöðu, annaðhvort "Lokið" eða "Ólokið". Sjálfgefið opnast vinnuskjalið með afmörkun á "Ólokið".
Átt skjals
Afmörkun á innfærslur:
Hægt er að afmarka vinnuskjalið til að skoða eingöngu rafræna reikninga sem eru á innleið.
Afmörkun á útfærslur:
Hægt er að afmarka vinnuskjalið til að skoða eingöngu rafræna reikninga sem eru á útleið.
Reikningar:
Reitirnir sem eru sýndir fyrir hvern reikning, er lýst undir "Rafrænn Reikningur". Sjá nánari lýsingu hér.
Aðgerðir:
Skoða:
Þegar smellt er á skoða, opnast valdi rafræni reikningurinn. Sjá nánari lýsingu hér.
Sækja skjöl f. öll dreifisvæði:
Sækir öll tiltæk rafræn skjöl frá öllum skeytamiðlurunum.
Senda skjöl f. öll dreifisvæði:
Sendir alla tiltæka rafræna reikninga út til allra skeytamiðlarana.
Skrá skjöl í NAV:
Reynir að stofna sölupantanir eða innkaupareikninga út frá sóttum rafrænum skjölum. Sjá nánari lýsingu hér.
Athuga skjöl:
Kerfið athugar öll rafræn skjöl sem eru ólokin og leitar að villum í þeim.
Allar villur:
Opnar villulista rafrænna reikninga. Sjá nánari lýsingu hér.
Uppfæra öll skjöl á útleið:
Ef reikningar á útleið eru ekki með stöðu "Send OK" og einhverjar forsendur hafa breyst í kerfinu þá er hægt að velja þessa aðgerð til að uppfæra þá áður þeir sendast út.
Vefgátt:
Undir þessum flipa er hægt að finna flýtileið til að opna vefgátt fyrir dreifisvæðin InExchange, Unimaze og Deloitte.
Niðurhala rafrænt skjal
Hleður niður rafrænt skjal sem er hægt að opna í vafra. Flýtileið á lyklaborði er Ctrl + Shift + E
.