Uppsetning rafrænna reikninga
Áður en kerfið er tekið í notkun þarf að fylla út uppsetningu rafrænna reikninga.
Almennt:
Fjárhagslykill afrúnnunar:
Fjárhagslykill sem verður notaður til að bóka auramismun á rafrænum reikningum.
eSkjal sjálfgefinn staðall:
Hér skal skilgreina sjálfgefinn staðal til að senda rafræna reikninga úr kerfinu.
eSkjal sjálfgefin tegund:
Hér skal skilgreina sjálfgefna tegund rafrænna reikninga til að senda rafræna reikninga úr kerfinu.
Kennitölureitur lánardrottna:
Hér skal skilgreina hvaða reitur í töflu "Lánardrottnar" inniheldur kennitöluna.
Kennitölureitur viðskiptamanna:
Hér skal skilgreina hvaða reitur í töflu "Viðskiptamenn" inniheldur kennitöluna.
Sjálfg. bókunartexti:
Hægt er að velja sjálfgefinn bókunartexti úr rafrænum reikningum. Sjá nánari lýsingu hér.
Athuganir:
Mesta afrúnnunarupphæð:
Hér skal skilgreina mestu afrúnunarupphæð milli haus og línu sem kerfið samþykkir á rafrænum reikningi. Þessi reitur stýrir villutékkinu á rafræna reikningnum þegar reynt er að búa til NAV skjal.
Eiginleikar til vörpunar:
Er sérreitur sem á ekki að vera í kerfinu.
Mesta frávik VSK prósentu (%):
Á alltaf að vera sett á 0 þar sem kerfið á ekki að heimila að búa til NAV skjal með öðrum VSK prósentum en á rafrænum reikningi.
Leita að villum í vinnubók:
Ef hak er í þessum reit, leitar kerfið að villum í vinnuskjali um leið og vinnuskjalið er opnað. Það er ekki mælt með því að nota þetta þegar um mikinn fjölda rafrænna skjala er að ræða.
Banki:
Bankaupplýsingar eru sendar á rafrænum sölureikningum.
Útibú:
Bankanúmer bankareiknings fyrirtækisins.
Höfuðbók:
Höfuðbók bankareiknings fyrirtækisins.
Reikningsnúmer:
Reikningsnúmer bankareiknings fyrirtækisins.
Stillingar:
Tengja viðhengi:
Ef hak er sett í þennan reit þá mun viðhengi í rafrænum reikningi tengjast við NAV skjal.
Úthlutun kostnaðarauka:
Með þessum reit er hægt að stilla hvernig kostnaðaraukareikningar eiga að vera úthlutaðir á móttöku. Möguleikar í boði eru: "Jafnt", "Eftir Upphæð", "Eftir þyngd" og "Eftir stærð".
Nr. röð reikninga:
Hér skal skilgreina númeraröð innkaupareikninga ef kerfið á ekki að nota númeraröðina sem tilgreind er í innkaupagrunni.
Nr. röð bókaða reikninga:
Hér skal skilgreina númeraröð bókaðra innkaupareikninga ef kerfið á ekki að nota númeraröðina sem tilgreind er í innkaupagrunni.
Nr. röð kreditreikninga:
Hér skal skilgreina númeraröð innkaupakreditreikninga ef kerfið á ekki að nota númeraröðina sem tilgreind er í innkaupagrunni.
Nr. röð bókaðra kreditreikninga:
Hér skal skilgreina númeraröð bókaðra innkaupakreditreikninga ef kerfið á ekki að nota númeraröðina sem tilgreind er í innkaupagrunni.
Nota heimilisf. frá rafr. skjali:
Nota lýsingu frá möppun:
Ef hakað er í þennan reit verður lýsingin á fjárhagslínum tekin úr möppunum, á BC reikningum stofnuðum út frá rafrænum reikningum.
Bæta við afhendingarstað á kreditreikninga:
Ef hakað er í þennan reit bætist afhendingarstaður við kreditreikninga. Ef upp koma vandamál skaltu íhuga að óvirkja þennan valkost.
Sleppa athugasemd um uppruna við stofnun BC skjals:
Þegar þessi reitur er virkur þá kemur ekki "*Stofnað með eDocs skjölum Rue de Net Reykjavík" athugasemd á BC skjöl sem eru stofnuð út frá eDoc.
Nota Unimaze Approvals bókunarlýsingar
Ef hakað er í þennan reit virkjast aukinn stuðningur við Unimaze Approvals bókunarupplýsingar. Sjá nánar hér
Nota ytri víddir
Ef hakað er í þennan reit virkjast virkni sem felur í sér innlestur á ytri víddum byggðum á staðli Peppol í BII skeytum og samsvörun þeirra við BC víddir. Sjá nánar hér
Villur:
Senda tölvupósta vegna villna:
Ef hakað er í þennan reit þá sendir kerfið tölvpósta til villuviðtakanda þegar villa er á rafrænum reikningi.
Póstfang villusendanda:
Póstfang sem kerfið mun nota til að senda tölvupósta frá vegna villna.
Email fyrir villuviðtakanda villuskilaboða:
Póstfang sem kerfið mun nota til að senda tölvupósta til vegna villna.
Sleppa athugun skjals fyrir okkur:
Ef hakað er í þennan reit þá sleppur kerfið að athuga hvort það sé misræmi milli viðtakanda reiknings og kennitölu í stofngögnum fyrirtækisins.
Sleppa VSK athugun í vörpun:
Ef hakað er í þennan reit þá sleppur kerfið að athuga hvort það sé misræmi milli VSK á rafrænum reikningi og vörpun t.d. vöru eða fjárhagsreikning.
Tíðni endursendinga:
Ef reikningur á leiðinni út lendir á villu er hægt að láta kerfið reyna aftur að senda nokkrum mínútum seinna. Ef svo er, þá á að skilgreina tímabilið í þessum reit.
Ítarlegt:
Tengt LS Retail:
Gefur til kynna að kerfið er tengt við LS Retail.
EDI:
X400 pósthólf:
X400 pósthólf fyrir EDI sendingar.
EDI dreifingaraðili:
EDI dreifingaraðili fyrir EDI sendingar.
Nota vörustrikam. úr eDocs:
Ef hakað er í þennan reit sendir kerfið strikamerki í staðinn fyrir vörunúmer í rafrænum reikningum. Gildir bara fyrir EDI sendingar.
Nota pöntunaraðsetur
Ef hakað er í þennan reit sendir kerfið EAN númer aðsetursins sem er undir pöntunaraðsetur á innkaupapöntun, sé það ekki til staðar sendir kerfið EAN númer lánardrottins.
Geymsla
Geymsla rafrænna skjala á útleið
Með þessum reit er hægt að stilla hvernig viðhengi og blobs eru geymd þegar rafræn skjöl eru send út. Möguleikarnir í boði eru: Geyma öll skjöl (sjálfgefið), Eyða eDoc Blobs (viðhengi geymd), Eyða eDoc blobs og viðhengi.
Geymsla rafrænna skjala á innleið
Með þessum reit er hægt að stilla hvernig viðhengi og blobs eru geymd þegar rafræn skjöl koma inn. Möguleikarnir í boði eru: Geyma öll skjöl (sjálfgefið), Eyða eDoc blobs (viðhengi geymd), Eyða eDoc blobs og viðhengi.
Varðveislutími Rafrænna Skjala
Segir til um hversu lengi (í dögum) á að geyma viðhengi og blobs í gagnagrunni þar til þeim verður eytt.
Virkja eDoc Clearance Verkraðara
Ef hakað er í þennan reit er stofnaður verkraðari sem keyrir daglega og eyðir eDoc blobs og viðhengjum úr gagnagrunninum m.v. varðveislutímann sem er skilgreindur fyrir ofan.
Stofngögn:
Athuga að það þarf að skrá EAN kennitölu fyrir sendingar í stofngögn. Sjá nánari lýsingu hér.
Aðgerðir
Nýtt
Stofna varpanir:
Stofna varpanir fyrir rafræn skjöl. Kerfið leitar í öllum innkaupaskjölum að vörunúmeri lánardrottins miðað við vörunúmer. Ef það finnst stofna þá varpanir á vörunúmer lánardrottins í vörunúmeri í kerfinu. Sjá nánari lýsingu hér
Vinna
EAN kenni birgðastöðvar:
Opna lista yfir EAN kenni birgðastöðvar ef á að senda EDI pantanir frá birgðageymslu. Sjá nánari lýsingu hér
Varpanir:
Opna lista yfir alla varpanir í kerfinu. Sjá nánari lýsingu hér
Uppsetning bókunarlýsingar:
Opna lista bókunartextastillinga. Sjá nánari lýsingu hér
Stillingar á rafrænum reikningum viðskiptavinar:
Opna stillingar á rafrænum reikningum viðskiptavins. Sjá nánari lýsingu hér
Stillingar rafrænna skjala lánardrottins:
Opna stillingar á rafrænum reikningum lánardrottins. Sjá nánari lýsingu hér