Stillingar á rafrænum reikningum viðskiptavinar
Þessi gluggi heldur utan um allar stillingar fyrir rafræna reikninga viðskiptavina svo sem dreifisvæði, gerð eskjals o.fl. Upplýsingar sem eru fylltar út undir flipanum "Rafrænir reikningar" á viðskiptavinaspjaldi sjást í þessum lista.
Nr.:
Númer viðskiptavinar.
Heiti:
Heiti viðskiptavinar.
Dreifisvæði:
Velja dreifisvæði til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins.
Gerð eDoc skjals:
Velja staðal sem á að nota til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins. Getur verið BII, NES eða EDI.
GLN númer:
Er bara notað ef um EDI samskipti er að ræða, þá er EAN kennitala fyrirtækis sett hér
X400 pósthólf:
Pósthólf birgja fyrir EDI samskipti.
Nota grunnmælieiningu:
Ef hak er í þessum reit þá verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) sett á allar línur reikninga á þennan viðskiptamann. Ef ekki er hakað í þennan reit þá er notast við vörpunum mælieininga þannig að ef mæleining er t.d. KG þá verður sent KGM í BII eða EDI reikningum.
Fjöldi afhendingaraðsetra:
Sýnir fjölda aðsetra sem eru skráð til að taka á móti rafrænum reikningum. Sjá nánari lýsingu hér.
Tengt
Sendist-til Aðsetur:
Opnar glugga fyrir stillingar á rafrænum reikningum afhendingaraðseturs. Sjá nánari lýsingu hér.