Senda rafrænan reikning til viðskiptavina
1. Viðskiptamaður óskar eftir að fá send rafræn skjöl.
Það þarf að vita hvaða tegund af eSkjali viðskiptavinurinn getur tekið á móti (BII, NES, EDI).
Svo þarf að fylla út í reitina undir flipanum "Rafræn skjöl" á viðskiptamannaspjaldi. Sjá nánari lýsingu hér.
2. Bóka sölureikning:
Búa til og bóka venjulegan sölureikning.
3. Sölureikningurinn stofnast rafrænt:
Ef viðskiptamannaspjaldið er fyllt út fyrir rafræn skjöl þá myndast sjálfkrafa rafrænn reikningur á útleið.
Hægt er að skoða það í vinnuskjali rafrænna reikninga.
4. Senda rafrænan reikning:
Reikningurinn stofnast með stöðu "Sendist".
Notandinn þarf að velja "Heim - Senda skjöl f. öll dreifisvæði" til þess að reikningurinn fari út til skeytamiðlara. Hægt er að setja upp sjálfvirkni í verkraðarfærslu. Sjá nánari lýsingu hér.
Þá breytist staðan í "Sending OK" og rafræni reikningurinn færist undir stöðu "Lokið" í vinnuskjalinu.
Hægt er að opna rafrænan reikningi með því að velja Aðgerðir - Sækja rafrænt skjal.
5. Tryggja að allir bókaðir reikningar stofnist sjálfvirkt í vinnuskjalinu:
Ef umfangið á bókuðum reikningum á hverjum tíma er töluvert, getur verið að reikningur stofnist ekki rafrænt. Til að koma í veg fyrir það er hægt að setja upp verkraðarfærslu sem athugar reglulega ef reikningur hefur verið bókaður en ekki stofnaður rafrænt.
Til þess er búin til verkraðafærsla á codeuniti númer 10041563.