Lánardrottnaspjald
Frá lánardrottnaspjaldi er hægt að skoða öll rafræn skjöl síuð á númer lánardrottins.
Rafrænir reikningar
Nota grunnmælieiningu:
Ef hak er í þessum reit þá verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) settur á allar línur pöntunar á þennan lánardrottinn.
Ef það er ekki hakað í þennan reit þá er notast við vörpunum mælieininga þannig ef mæleining er t.d. KG þá verður sent KGM í BII eða EDI reikningum.
Dreifisvæði:
Dreifisvæði sem á að nota til að senda rafræn skjöl á þennan lánardrottinn. Ef þessi reitur er skilinn eftir tómur þá sendast ekki rafrænar pantanir á þennan lánardrottinn.
Gerð eDoc skjals:
Gerð eDoc skjals sem lánardrottinn tekur á móti (staðall).
EAN kenni:
Vegna EDI sendingar þarf að tilgreina EAN kenni lánardrottins.
X400 Pósthólf:
Vegna EDI sendingar þarf að tilgreina X400 pósthólf lánardrottins.
Uppsetning bókunartexta:
Hægt er að skilgreina bókunarlýsingu per lánardrottin sem mun stýra því hvernig lýsingin á lánardrottnafærslu verður. Sjá nánari lýsingu hér.
Athuga pöntunarnúmer:
Ef hak er í þessum reit þá mun kerfið athuga rafrænan reikning hvort það er tilvísun í innkaupapöntun og ef svo er, mun það stofna innkaupareikning út frá innkaupapöntuninni.
Sameiginleg vörunúmer:
Ef hakað er í þennan reit mun kerfið gera ráð fyrir að vörunúmer frá birgja sé það sama og hjá viðskiptavini og því varpast vörunúmerin sjálfkrafa.
Lánardrottinn
Mynda rafræna reikninga:
Opnar aðgerð til að mynda rafræna reikninga aftur í tímann. Sjá nánari lýsingu hér.
Tengt
Rafrænir reikningar:
Opnar vinnuskjal rafræna reikninga (lokið og ólokið) síað á númer lánardrottins.
Flýtileið á lyklaborði er Ctrl + E
. Sjá nánari lýsingu hér.
Varpanir rafrænna reikninga:
Opnar allar varpanir síað á númer lánardrottins. Sjá nánari lýsingu hér.