Hoppa yfir í efnið

Viðskiptamannaspjald

Það þarf að stilla rafræn skjöl á viðskiptamannaspjaldi til að hægt sé að senda sölureikninga og kreditreikninga rafrænt til viðskiptavina. Þetta er gert í flipanum "Rafræn skjöl" á Viðskiptamannaspjaldi.

alt text

Nota grunnmælieining:

Ef hak er í þessum reit þá verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) sett á allar línur reikninga á þennan viðskiptamann.

Ef ekki er hakað í þennan reit þá er notast við vörpunum mælieininga þannig að ef mæleining er t.d. KG þá verður sent KGM í BII eða EDI reikningum.

Dreifisvæði:

Velja dreifisvæði til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins.

Dreifisvæði sem á að nota til að senda rafræn skjöl á þennan viðskiptamann. Ef þessi reitur er skilinn eftir tómur þá sendist ekki rafrænn reikningur á þennan viðskiptamann.

Gerð eDoc skjals:

Velja staðal sem á að nota til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins. Getur verið BII, NES eða EDI.

X400 pósthólf:

Hér á að skrá X400 prófhólf viðskiptamanns. Er bara notað ef um EDi samskipti er að ræða.

GLN-númer:

Er bara notað ef um EDI samskipti er að ræða en EAN kennitala er þá skráð í þessum reit.

Viðskiptamaður

Mynda rafræna reikninga:

Opnar aðgerð til að mynda rafræna reikninga aftur í tímann. Sjá nánari lýsingu hér.

Tengt

Rafrænir reikningar:

Opnar vinnuskjali rafræna reikninga með afmörkun á rafræn skjöl viðskiptamanns.

Flýtileið á lyklaborði er Ctrl + E. Sjá nánari lýsingu hér.

Aðgerðir

Mynda rafræna reikninga:

Hægt er að mynda rafræna reikninga á tiltekinn viðskiptavin. Sjá nánari lýsingu hér.