Dreifisvæði
Dreifisvæði er notað til að tengjast við skeytamiðlara.
Almennt
Kóði:
Kóði dreifisvæðis.
eSkjal sjálfgefinn staðall:
Sjálfgefinn staðall fyrir rafræna reikninga. Möguleikarnir eru: BII, NES, EDI.
Tegund:
Tegund skeytamiðlara. Möguleikarnir eru: InExchange vefþj., Unimaze vefþj. og Deloitte. Þegar tegundin er valin fyllast vefslóðirnar sjálfkrafa fyrir völdu tegundina.
XSLT til að nota:
Til að geta valið sitt eigið XSLT.
Senda viðhengi:
Ef hakað er í þennan reit þá sendist viðhengi með rafrænum reikningi.
Sjálfvirk vinnsla:
Ef hakað er í þennan reit þá eru skeyti sótt sjálfvirkt þegar vinnuskjal rafrænna reikninga er opið.
Hliðrun:
Er fyrir EDI skeyti. Þetta er notað ef reitirnir í EDI skeyti eru ekki á stöðluðu formi, heldur með meira bil á milli reita. Ef er skráð t.d. 2 í þennan reit þá telur kerfið 2 auka bil til hægri á milli reita.
Nota eDocs exchange:
Ekki notað í Saas.
eDocs vefþj. slóð:
Ekki notað í Saas.
Númer á afh. codeunit:
Er sjálfgefið fyllt með 87312.
Vefþjónusta
Vefslóð inn-skjals URL:
Fyllist sjálfkrafa þegar tegund er valin með viðeigandi vefslóð skeytamiðlara.
Vefslóð út-skjals:
Fyllist sjálfkrafa þegar tegund er valin með viðeigandi vefslóð skeytamiðlara.
Vefslóð 3:
Fyllist sjálfkrafa þegar tegund er valin með viðeigandi vefslóð skeytamiðlara.
Kennitala móttakanda:
Kennitala fyrirtækisins sem er að taka á móti rafrænum reikningum.
Notandanafn:
Notandanafn hjá skeytamiðlara.
Lykilorð:
Lykilorð notanda hjá skeytamiðlara.
Aðgerðir:
Sækja skrár:
Sækir öll tiltækum rafræn skjölu frá skeytamiðlara.
Skrá skjöl í NAV:
Reynir að stofna innkaupapantanir eða reikninga út frá sóttum rafrænum skjölum.
Senda skrár:
Sendir alla tiltæka rafræna reikninga út til skeytamiðlara.
Prófa tengingu:
Prófar tengingu við dreifisvæði og skilar meldingu um hvort tengingin hafi tekist.