Hoppa yfir í efni

Línuskilgreiningar

Í hverri skilgreiningu gagnaskipta eru Línuskilgreiningar sem tilgreina allskonar tengdar skilgreiningar fyrir rafrænan reikning.

alt text

Tegund línu:

Tegund línu, notum Upplýsingar.

Kóti:

Kóti línu.

Heiti:

Heiti línu.

Dálkafjöldi:

Er ekki notað.

Gagnalínumerki:

Gagnalínumerki í xml skeyti.

Nafnabil:

Nafnabil í xml skeyti.

Yfirkóði:

Yfirkóði línunnar.

Aðgerðir

Vörpun reita:

Ef við veljum aðgerðina Vörpun reita í línuskilgreiningalínunum þá fáum við upp spjald sem leyfir okkur að varpa hverri nóðu fyrir sig yfir í reit í töflu.

Ef að bæta þarf við meðhöndlun á nóðu í xml skjali sem berst er nóg að bæta henni við sem dálkaskilgreining í viðeigandi línuskilgreiningu, og varpa henni svo yfir í þann reit sem við á.