Hoppa yfir í efni

Viðskiptamannaspjald

Frá viðskiptamannaspjaldi er hægt að skoða öll rafræn skjöl síuð á númer viðskiptamanns.

alt text

Rafræn skjöl

Nota grunnmælieiningu:

Ef hak er í þessum reit þá verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) sett á allar línur reikninga á þennan viðskiptamann. Ef ekki er hakað í þennan reit þá er notast við vörpunum mælieininga þannig að ef mæleining er t.d. KG þá verður sent KGM í BII eða EDI reikningum.

Dreifisvæði:

Dreifisvæði sem á að nota til að senda rafræn skjöl á þennan viðskiptamann. Ef þessi reitur er skilinn eftir tómur þá sendist ekki rafrænn reikningur á þennan viðskiptamann.

Gerð eDoc skjals:

Gerð eDoc skjals sem viðskiptamaðurinn tekur á móti (staðall).

X400 Pósthólf:

Vegna EDI sendingar þarf að tilgreina X400 pósthólf viðskiptamanns.

GLN-númer:

Vegna EDI sendingar þarf að tilgreina GLN númer viðskiptamanns sem er EAN kennitalan.

Viðskiptamaður

Mynda rafræna reikninga:

Opnar aðgerð til að mynda rafræna reikninga aftur í tímann. Sjá nánari lýsingu hér.

Tengt

Rafræn skjöl:

Opnar vinnuskjal rafræna reikninga (lokið og ólokið) síað á númer viðskiptamanns. Sjá nánari lýsingu hér.