Hoppa yfir í efni

Lánardrottnaspjald

Frá lánardrottnaspjaldi er hægt að skoða öll rafræn skjöl síuð á númer lánardrottins.

alt text

Rafræn skjöl

Nota grunnmælieiningu:

Ef hak er í þessum reit þá verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) settur á allar línur pöntunar á þennan lánardrottinn. Ef það er ekki hakað í þennan reit þá er notast við vörpunum mælieininga þannig ef mæleining er t.d. KG þá verður sent KGM í BII eða EDI reikningum.

Dreifisvæði:

Dreifisvæði sem á að nota til að senda rafræn skjöl á þennan lánardrottinn. Ef þessi reitur er skilinn eftir tómur þá sendast ekki rafrænar pantanir á þennan lánardrottinn.

Gerð eDoc skjals:

Gerð eDoc skjals sem lánardrottinn tekur á móti (staðall).

EAN kenni:

Vegna EDI sendingar þarf að tilgreina EAN kenni lánardrottins.

X400 Pósthólf:

Vegna EDI sendingar þarf að tilgreina X400 pósthólf lánardrottins.

Uppsetning bókunarlýsingar:

Hægt er að skilgreina bókunarlýsingu per lánardrottin sem mun stýra því hvernig lýsingin á lánardrottnafærslu verður. Sjá nánari lýsingu hér.

Athuga pantananúmer:

Ef hak er í þessum reit þá mun kerfið athuga rafrænan reikning hvort það er tilvísun í innkaupapöntun og ef svo er, mun það stofna innkaupareikning út frá innkaupapöntuninni.

Sameiginleg vörunúmer:

Ef hakað er í þennan reit mun kerfið gera ráð fyrir að vörunúmer frá birgja sé það sama og hjá viðskiptavini og því varpast vörunúmerin sjálfkrafa.

Lánardrottinn

Mynda rafræna reikninga:

Opnar aðgerð til að mynda rafræna reikninga aftur í tímann. Sjá nánari lýsingu hér.

Tengt

Rafræn skjöl:

Opnar vinnuskjal rafræna reikninga (lokið og ólokið) síað á númer lánardrottins. Sjá nánari lýsingu hér.

Varpanir rafrænna reikninga:

Opnar allar varpanir síað á númer lánardrottins. Sjá nánari lýsingu hér.