Hoppa yfir í efni

Skrá margar víddir í vörpunum

Þegar margar víddir eru notaðar í kerfinu þarf notandinn að geta varpað bókunarupplýsingum á margar víddir í reikningshaus og reikningslínum.

Hér verður útskýrt hvernig hægt er að skrá vörpun á margar víddir á rafrænum reikning.

  1. Opna varpanir á rafrænum reikning:

alt text

Þar sem eSkjal tegund er Bókunarupplýsingar, er hægt að velja NAV tegund sem Vídd og svo víddina undir NAV kenni 1 og víddargildi undir NAV kenni 2.

Ef á að skrá sérstaka vídd á reikningslínu þá þarf að velja eSkjal tegund = Vara og bæta við bókunarupplýsingar í eSkjal tegund 2 og gildi þess í eSkjal kenni 2. Eftir það er hægt að skrá Vídd í NAV tegund, víddina í NAV kenni 1 og víddargildi undir NAV kenni 2.

  1. Skrá skjalið í NAV:

alt text

alt text

Þegar hefur verið valið að skrá skjal í NAV þá stofnast innkaupareikningurinn. Hægt er að sjá víddirnar á reikningshaus og á reikningslínum skv. vörpunum.