Skrá skjal í NAV
Þegar rafrænn reikningur hefur verið móttekinn í vinnuskjali er hægt að skrá skjalið í NAV.
1. Rafrænn reikningur í vinnuskjali eftir að NAV skjal hefur verið stofnað:
Staðan á rafrænum reikningi breytist í "Flutt í NAV skjal" og reikningurinn færist undir "Lokið" á vinnuskjalinu.
2. Opna innkaupareikninginn:
Innkaupareikningur hefur verið búinn til.
Í upplýsingakassa fyrir skjalaskrár á innleið er hægt að skoða Html skjalið sem fylgir rafrænum reikningum auk annarra viðhengja.
Í línunum er skráð athugasemd um að reikningurinn hafi verið stofnaður út frá rafrænum reikningi.
Undir Tengt - eDoc er hægt að opna rafrænan reikning.
Nú er hægt að fara yfir reikninginn og senda hann til samþykktar og/eða bóka.