Hoppa yfir í efni

Viðskiptamannaspjald

Það þarf að stilla rafræn skjöl á viðskiptamannaspjaldi til að senda sölureikninga og kreditreikninga rafrænt til viðskiptavina. Þetta er gert í flipanum "Rafræn skjöl".

alt text

Nota grunnmælieining:

Ef hak er í þessum reit þá verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) sett á allar línur reikninga á þennan viðskiptamann. Ef ekki er hakað í þennan reit þá er notast við vörpunum mælieininga þannig að ef mæleining er t.d. KG þá verður sent KGM í BII eða EDI reikningum.

Dreifisvæði:

Velja dreifisvæði til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins.

Gerð eDoc skjals:

Velja staðal sem á að nota til að senda rafræn skjöl til viðskiptamannsins. Getur verið BII, NES eða EDI.

X400 pósthólf:

Er bara notað ef um EDi samskipti er að ræða. Hér á að skrá X400 prófhólf viðskiptamanns.

GLN-númer:

Er bara notað ef um EDI samskipti er að ræða en EAN kennitala er þá skráð í þessum reit.

Tengt

Rafræn skjöl:

Opnar vinnuskjali rafræna reikninga með afmörkun á rafræn skjöl viðskiptamanns.

Sendist-til aðsetur:

Er bara notað ef um EDi samskipti er að ræða. Til að senda EDI skjöl til aðseturs þarf að skrá EAN kennitala aðsetursins inn í reitnum GLN-Númer. Sjá nánari lýsingu hér.

Aðgerðir

Mynda rafræna reikninga:

Hægt er að mynda rafræna reikninga á tiltekinn viðskiptavin. Sjá nánari lýsingu hér.