Hoppa yfir í efni

Inngangur

Rafræn sending og móttaka reikninga

Í nútíma viðskiptum snýst allt um hraða og sjálfvirkni og þar með er aukin krafa um rafræn viðskipti. Rafræn viðskipti veita yfirsýn á reikningum, hvort sem er við gerð þeirra eða móttöku. Rafrænir reikningar auðvelda allt ferli reikninga í Microsoft Dynamics 365 Business Central viðskiptakerfinu, þar að auki er hægt að stórlækka kostnað við sendingu, móttöku og skráningu reikninga ásamt því að áreiðanleiki og rekjanleiki þeirra verður meiri.

Hvað gera Rafrænir reikningar Rue de Net

Reikningar lesast inn sjálfvirkt og fara rafrænt í viðskiptakerfi viðskiptavina mínútum eftir að hann er bókaður, þannig á fljótlegan hátt, er hægt að senda viðskiptavinum rafræna reikninga, lesa inn rafrænar pantanir frá viðskiptavinum og taka við rafrænum reikningum frá birgjum. Reikningar og pantanir lesast inn sjálfkrafa í Business Central, flóknari reikningar krefjast lítillar vinnu og þar með er rekjanleiki og villuhætta í algjöru lágmarki.

Síðast en ekki síst þá eru Rafrænir reikningar umhverfisvænn kostur því með rafrænum viðskiptum er óþarfi að taka við bréfpósti, skanna inn reikninga, skjala þá og á sama hátt verður óþarfi að prenta út reikninga og senda eftir hefðbundnum leiðum.

Helstu kostir

  • Sjálfvirkni
  • Tímasparnaður
  • Villuhætta í lágmarki
  • Umhverfisvænn kostur