Uppsetning tollakerfis
Opnið Uppsetningu tollakerfis
Gátlisti
Tilgreinið hvað þarf að að setja upp í tollakerfinu.
Númeraseríur
Hver tollskýrsla þarf einkennandi númer. Með því að velja hnappinn "Búa til Númeraseríu" verða sjálfkrafa til allar seríur sem þarf að nota.
Innflutningstollskrá, tollgögn og pakkavísanir
Velja þarf að lesa inn gögn til að halda áfram með uppsetningu.
EDI
Veldu og skráðu þig inn hjá þeirri þjónustu sem þú notar til að senda og taka á móti EDI skjölum.
X400 & EAN
Setjið inn X400 pósthólf og 13 stafa EAN kennitölu
Tollafgreiðsluaðili
Velja þarf tollafgreiðsluaðila ef kerfi finnur hann ekki sjálfvirkt
Kostnaðargjöld og Fjárhagslyklar
Hér þarf að velja sérstillingar fyrir fjárhagslykla
Sjálfgefin gildi kostnaðar
Kostnaðarauki dreifist sjálfkrafa á vörur og fer beint í kostnaðarverð þegar tollskýrsla er bókuð. Lyklar fyrir kostnaðarauka geta verið sjálfkrafa búnir til með því að velja 'Gera lykla'
Þegar lyklar eru tilbúnir þarf að sérsníða þá eftir þörfum fyrirtækis: Leiðbeiningar
Tryggingar
Veljið tryggingaraðila og fyllið inn í viðeigandi reiti
VSK
Í töflunni þarf að tengja Ö5 og Ö6 við rétta fjárhagslykla. Lyklar O5 og O6 eru sjálkrafa uppsettir í lok uppsetningar. Þeir eru notaðir ef kerfi eiga erfitt með að lesa Íslenska stafi.
Tollkvótar
Þessi síða sést einingu ef hakað er við í gátlista að notast við tollkvóta.
Þyngdardreifing
Þessi síða sést einingu ef hakað er við í gátlista að notast við þyngdardreifingu.
Ljúka við uppsetningu
Hér má sjá samantekt yfir uppsetningu. Veljið ljúka þegar allt er klárt.