Hoppa yfir í efni

Tollsvör

Hægt er að skoða öll tollsvör sem hafa borist á tollskýrslu. Frá listanum er hægt að opna hvert skeyti til að skoða innihald nánar. Sjá nánari lýsingu hér.

alt text

Dagsetning móttekin:

Dagsetning og tími sem EDI skeyti var lesið inn í kerfið.

Nr. tollskýrslu:

Númer útflutningsskýrslu sem tollur sendir svar fyrir.

EDI tegund:

Tegund svarskeytis frá tolli. T.d. CUSGER, CUSERR, CUSDOR eða CUSTAR.

Númer skjals/skeytis:

Oftast fyllt út með sendingarnúmeri tollsskýrslu.

Kennitala :

Kennitala útflytjanda á svarskeyti.

Kennitala umboðsaðila :

Ef skýrslan hefur verið unnið af tollmiðlara fyllist kennitala hans út í þessum reit.

Dagsetning móttöku tollskýrslu hjá tollstjóra:

Dagsetning sem tollstjóri tók á móti tollskýrslu á EDI.

Upphæð:

Samtals aðflutningsgjöld og VSK í skeyti. Er alltaf 0 nema um CUSTAR skeyti í innflutningi sé að ræða.