Hoppa yfir í efni

Sækja tollgengi með verkraðarafærslu

Uppsetning í verkraðara

Hægt er að búa til verkraðarafærslu sem sækir tollgengi sjálfkrafa með reglulegu millibili.

alt text

Hlutategund í keyrslu:

Hér á að velja Codeunit.

Hlutakenni í keyrslu:

Hér á að velja RdN CC Exchange rate Mgt. sem er númer 10040359 í öllum útgáfum nema númer 85009 í BC Saas og 10042359 ef kerfið hefur verið sóttur úr markaðstorgi viðbóta.

Endurtekning:

Hér á að velja alla daga vinnuvikunnar.

Upphafstími:

Hér á að velja klukkan hvað keyrslan á að byrja á daginn.

Lokatími:

Hér á að velja klukkan hvað keyrslan á að enda á daginn.

Mínutufj. á milli keyrslu:

Best að hafa sem oftast, t.d. að setja 5 mínutur á milli keyrslna.

Svo þarf að setja verkraðarafærslu á tilbúið og fylgjast með að hún lendi ekki á villu.